Skinfaxi - 01.12.1976, Page 9
Þátttakendur í félags-
málanámskeiði Félags-
málaskóla UMFÍ í
Svarfaðardal fyrr á
þessu ári. Með á mynd-
inni eru Hafsteinn Þor-
valdsson og Sigurður
Geirdal sem leiðbeindu
á námskeiðinu ásamt
Þóroddi Jóhannssyni.
húsmót í frjálsum íþróttum. Þá er blak
allmikið iðkað á sambandssvæðinu, og
ekki má gleyma því að blaklið UMSE
sigraði í 2. deild á síðasta íslandsmóti
og keppir í 1. deild í vetur. Blak er að
mörgu leyti kjörin íþrótt fyrir sveit-
Aðalsteinn
Bernharðsson,
einn hesti af-
reksmaður
UMSE í frjáls-
um íþróttum.
irnar því að hægt er að nýta flest fé-
lagsheimilin fyrir æfingar. Þetta er
líka víða gert, og aðeins á einum stað
hefur ekki fengist leyfi til aö iðka blak
í félagsheimili á svæðinu. Annars há-
ir skortur á íþróttahúsnæði mjög
íþróttahúsnæði mjög íþróttastarfinu á
veturna. Á sambandssvæðinu er ekk-
ert íþróttahús nema á Dalvík, en þar
er 18x20 metra salur.
Félagsmálafræðsla er orðinn fastur
þáttur í vetrarstarfinu síðan Félags-
málaskóli UMFÍ varð verulega öflugur.
Síðastliðinn vetur voru tvö námskeið
hjá okkur, og við ætlum að auka þessa
starfsemi til muna á komandi vetri.
— Og sumarstarfið?
— íþróttirnar eru að sjálfsögðu
mest ráðandi á sumrin, en sambandið
hefur ekki staðið fyrir sumarsamkom-
um hin síðari ár. Knattspyman er
jafnan fjölmennust. Lið frá einu sam-
bandsfélaganna, Reyni á Árskógs-
strönd, hefur leikið i 2. deild s.l. tvö ár
og Umf. Árroðinn í Öngulstaðahreppi
SKINFAXI
9