Skinfaxi - 01.12.1976, Blaðsíða 15
Upp úr öldudalnum
Rætt við Gest Þorsteinsson
formann UMSS
Gestur Þorsteinsson á Sauðárkróki,
gamalkunnur íþróttamaður, var s.l.
vor kosinn formaður Ungmennasam-
bands Skagafjarðar. Skinfaxi hitti
Gest að máli í október og spurði hann
um félagsstarfið í Skagafirði.
— Það hefur verið dauft undanfar-
in ár, en það er unnið skipulega að því
núna að blása lifi i starfsemina. Ráð-
inn hefur verið maður í starf æsku-
lýðsfulltrúa Sauðárkróks, og er hann
Sigurlína Gísla-
dóttir er ein af
snjöllustu frjáls-
íþróttastúlkum
landsins. Hér er
hún í keppni í
hástökki á hér-
aðsmóti UMSS.
að hálfu starfsmaður bæjarfélagsins
en að hálfu starfsmaður UMSS og
Umf. Tindastóls á Sauðárkróki. Til
starfans var ráðinn Guðmundur
Gunnarsson, en hann hefur starfað í
ungtemplarahreyfingunni og er vanur
félagsmálamaður. Þó að UMSS eigi að-
eins fjórðung i þessum starfsmanni,
hefur þegar komið i ljós árangur af
starfi hans. Hann hefur heimsótt ung-
mennafélögin i héraðinu og haldið
fundi með forystumönnum þeirra. Um
miðjan október var svo í framhaldi af
því haldinn formannafundur hjá
UMSS þar sem formenn ungmenna-
félaganna og stjórn UMSS þingaði um
starfið ásamt starfsmanninum.
— Hvað verður það helsta i endur-
vakningarstarfinu á næstunni?
— Áformað er að halda félagsmála-
námskeið á mörgum stöðum í vetur.
Þá ætlum við að hleypa af stokkunum
skemmtunum með spurningakeppn-
inni „sveitastjórnirnar keppa“. Og svo
verður reynt að glæða íþróttalífið og
hvers konar félagsstarfsemi líka.
SKINFAXI
15