Skinfaxi - 01.12.1976, Síða 18
Skákþing UMFÍ 1976
Nýlega er lokið skákþingi UMFÍ 1976,
en þar er um að ræða sveitakeppni í skák
á vegum ungmennafélaganna, og spannar
hún um allt land. Hver Sambandsaðili
UMFÍ hefur rétt til að senda eina fjög-
urra manna sveit til keppni, og er sveit-
unum síðan skipt í þrjá riðla og tefla tvö
efstu lið í hverjum riðli til úrslita. Alls
voru 14 sveitir skráðar til leiks að þessu
sinni, en þær, sem í úrslit komust, voru
eftirtaldar. í síðasta blaði var skýrt frá
forkeppni skákþingsins í ár.
Úrslitin fóru fram dagana 6.—7. nóv.
í Kópavogi. HSS boðaði forföll og tefldu
því aðeins 5 sveitir, og varð árangur
þeirra sem hér segir:
Nr. Sveit 1 2 3 4 5 Vinn. alls Röð
1. USK □ iy2 2 1 1 5y2 5.
2. Umf. Bol 2y2 □ 1 2 2 7% 3.-4.
3. USAH 2 3 □ V2 2 7y2 3.-4.
4. UÍA 3 2 3 y2 □ 2y2 11 1.
5. UMSK 3 2 2 iy2 □ sy2 2.
UÍA var því sigurvegari og hlýtur til
varðveislu fagran verðlaunagrip „Skin-
faxastyttuna" og titilinn“ Skákmeistari
UMFÍ 1976.“ Nú hefur verið keppt um
„Skinfaxastyttuna," síðan 1969 og hafa
leikar farið þannig:
Skákmeistari UMFÍ:
1969 HSK
1970 UMSK
1971 —
1972 —
1973 —
1974 —
1975 —
1976 UÍA.
í sigursveit UÍA tefldu:
1. Trausti Björnsson,
2. Jóhann Þorsteinsson,
3. Eiríkur Karlsson,
4. Viðar Jónsson,
5. Gunnar Finnsson.
— Hvernig er fjárhagur sambands-
ins?
— Hann er ekki góður. UMSS hefur
mjög lítið fengið af styrkjum frá sveit-
arfélögunum, en við höfum ástæðu til
að ætla að nú verði breyting á því til
batnaðar. Við reiknum með nokkrum
tekjum af spurningaskemmtunum svo
og af héraðsbingó sem við ætlum okk-
ur að starfrækja á næstunni.
— Ertu bjartsýnn?
— Allt bendir til þess að við höfum
tilefni til bjartsýni, því að mér finnst
að byggðarlagið sé að vakna til auk-
inna starfa innan ungmennafélag-
anna.
18
SKINFAXI