Skinfaxi - 01.12.1976, Page 23
Bandaríkjamaðurinn Charles H.
Sherrill er talinn hafa verið fyrstur
manna til að nota krjúpandi viðbragð
í hlaupakeppni. Efsta myndin er af
Sherrill í viðbragðinu ásamt þremur
öðrum hlaupurum sem ætla af stað
með gamla laginu. Þetta var árið 1888.
Fljótlega létu spretthlauparar sann-
færast urn ágæti þessara furðulegu
stellinga, og flestir munu hafa notað
krjúpandi viðbragð á fyrstu nútíma-
olympíuleikunum 1896. Næst efsta
myndin er tekin í Bretlandi í lok 19.
aldar. Hlaupararnir, sem eru að
leggja af stað í 100 jarda hlaup, nota
allir hina nýju aðferð.
Stúlkurnar mega líka muna tvenna
tímana á hlaupabrautinni. Þriðja
myndin er auðvitað af nútímastúlkum
i sprettviðbragði. Búningur þeirra er
líka mun frjálslegri en hinar hnésíðu
brækur karlanaa um aldamótin. En
einhvern tíma hefði það þótt ósiðlegt
að stúlkur létu sjá sig svona létt-
klæddar á almannafæri. Neðsta mynd-
in er tekin í Þýskalandi árið 1900. Það
vantar ekki að stúlkurnar bregða kná-
lega við, og skammbyssa er notuð til
að ræsa. Ef þær hefðu mætt til keppni
í stuttbuxum, hefðu þær umsvifalaust
verið handteknar. Stúlkur munu
hvergi hafa notað krjúpandi viðbragð
fyrr en eftir fyrri heimsstyrjöldina.
SKINFAXI
23