Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1976, Side 25

Skinfaxi - 01.12.1976, Side 25
íslensku Ólympíuþátt- takendurnir í Stokk- hólmi 1912. Sigurjón er hér 6. frá vinstri. Á þessum Ólympíuleikum keppti Sigurjón í grísk- rómverskri glímu með frábæriun árangri eins og lýst er hér í grein- inni. tók aö berjast nokkuð ótt í brjóstum okkar félaga hans, við kviðum því ef Sigurjón yrði nú óheppinn, því mest var undir því komið, að komast hjá þeim erfiðustu fyrst, því 50 menn voru i flokki hans og sérhver úr sögunni er tvisvar beið ósigur. — Hamingj an heilög. — Það var Finni, að nafni Gustaf Lennart Lind, sem átti að mæta Sigurjóni. Okkur stóð stuggur af öllum finnum, því að af þeim gengu mestar tröllasögur. Háls finnans var öllu gildari að sjá en höfuðið og allur var maðurinn mjög sterklegur, en í fyrstu atrennunni náði Sigurjón á honum sínu bezta taki, (höfuðtaki með mjaðmarhnykk) og hafði hann þegar undir, en finninn smaug úr því á síðasta augnabliki. Þeir glímdu síðan í y2 klukkustund, svo hvorugur lá, en Sigurjóni veitti auðsjáanlega betur. Áttu þeir þá að hvíla í eina mínútu, en í næstu at- rennu lagði Sigurjón finnan, eftir skamma viðureign, (35 mín. í alt). Við hrópuðum ísland og hlupum til sigur- vegarans næsta kátir. Nú vikur sögunni aftur að viðureign Sigurjóns, hann átti sem sé að glíma undir eins þ. 8. aftur (daginn eftir). Við komum út á Stadion kl. 1,30 e. m. og þá urðum við eigi alllítið skelkaðir, er við sáum að „D. l.“ var þegar á stöng, en sá er eigi mætti í tíma, gat átt það á hættu, að vera dæmdur ósigurinn þegar í stað. Það var því asi á Sigurjóni, sem von var á, — og að svipstundu liðinni stóð hann and- spænis mótstöðumanni sínum. Við höfðum varla hafa tíma til að kviða hver nú mundi koma, — enda brá okkur eigi lítið í brún, er við sáum að það var hvorki meira né minna en heimsmeistari þessa flokks, Finn- inn Johan Kusaa Salila, sá er felt hafði S. M. Jensen í Kaupmannahöfn um vorið, í þyngsta flokki. Við höfðum enga von um að Sigurjón myndi standast honum snúning, þvi maður- inn var óárennilegur í okkar augum. SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.