Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1976, Qupperneq 29

Skinfaxi - 01.12.1976, Qupperneq 29
 hinn hið minsta. Voru þá báðir orðnir mjög dasaðir af átökunum, en þar við bættist ofsahiti. En nú urðu þeir að glíma í hálfa kl.stund, eða hver vissi hvað lengi, unz annarhvor yrði yfir- sterkari. Tókst þá Wiklund að þræla S. á hnén og síðan að grípa um mittið á honum, til þess að halda honum niðri og vaka yfir tækifæri til þess að koma honum út af jafnvægi, en fékk honum hvergi bifað. Þannig lá hann ofan á Sigurjóni í nærfelt hálfa kl.stund. Leiddist þá S. þófið og ætlaði að varpa honum fram af sér, en um leið nam vinstri öxl hans framanvert við dýnuna, og fyrir það var Wiklund dæmdur sigurinn. Okkur þótti þetta hörð úrslit, er hvergi nærri lá við falli. En nú var farið að fækka i flokki Sigurjóns, svo búast mátti við, að hann yrði nú að glíma aftur seinna um daginn, svo okkur þótti ekkert líklegra en það, að hann yrði úr sögunni að kveldi. — Jú, kl. 41/2 e. h. átti hann að glíma aftur. Hann var mjög illa til reika, eigi all- lítið skeindur á hnjánum og lerkaður og stirður í öllum vöðvum eftir viður- eignina við Wiklund. Samt mælti hann eigi æðruorð, en gekk furðu- rösklega á móti fjórða keppinaut sín- um, er einnig var Finni, August Rajala að nafni, og var hann allþrýstinn, sem öll sú sveit. Aldrei hafði Sigurjón snarast jafnákveðið og vasklega að mótstöðumanni sínum sem nú, enda tókst honum von bráðar að ná á hon- um valbragði sínu og keyra hann á því til jarðar umsvifalaust; síðan fylgdi hann á eftir, hægt og bítandi, unz herðar Finnans kystu dýnuna eftir 2 Sigurjón var líka vel liðtækur sundmaður og frjálsíþróttamaður. Hér er hann í hópi fleiri hraustra karla að loknu nýárssundinu 1912. Sundkeppnin var háð í Reykjavíkurhöfn á nýársdag. Sigurjón er yst til vinstri í fremri röð, og við hlið hans sitja þeir Erlingur Páls- son og Guðmundur Kr. Guömundsson. mínútna viðureign. Okkur létti nú í skapi og höfðum enn miklar vonir um það, að íslendingurinn kæmist í loka- glímuna með sæmilegri hepni, enda varð nú frammistaða hans nú þegar svo góð, að vel mátti við hana una, hvernig sem nú færi. Það voru nú einir 9 glímumenn eftir, að Sigurj. meðtöldum, er að eins höfðu beðið einn ósigur eða engan, og var S. því kominn upp í það, sem kallað er „semifinalen“, þ. e. eftir var ein glimu-umferð til lokaglímunnar, er að eins 3 þeir beztu fengju að taka þátt í. Okkur fanst því S. verðskulda að kom- ast lengra úr því sem komið var, og töldu blöðin viðureign þeirra Wiklunds einhverja eftirtektarveröustu glímuna fram að þeim tíma. En það sem enn SKINFAXI 29

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.