Skinfaxi - 01.12.1976, Síða 33
geysihörðu íþróttakeppni mesta afreks-
fólks heimsins?
Ég hef svarað þessari spurningu með
sjálfum mér og hef margt við þessa fram-
kvæmd að athuga. Ég ann okkar afreks-
fólki í íþróttum og vil því allt það besta,
en að mínu mati er bara svo ótalmargt
ógert áður enn þessari hæstu tröppu er
náð, og henni verður aldrei náð nema til
komi langtímaskipulag um markvissan
stuðning við afreksfólkið, og því verði
sköpuð sambærileg aðstaða og íþrótta-
afreksfólki annarra þjóða.
Góðir samkomugestir, i minum huga
á íþróttastarfið að skipa öndvegi í tóm-
stundastörfum barna og unglinga, og það
hefur það gert þau tæp 70 ár sem ung-
mennafélagshreyfingin hefur starfað á
íslandi. í þjóðfélagi vaxandi kyrrsetu,
vélvæðingar, og aukinna tómstunda er
mannskepnunni fátt nauðsynlegra en
holl tómstundaiðja og likamsrækt. Meðal
menningarþjóða eru íþróttir og uppbygg-
ing íþróttamannvirkja til hverskonar
íþróttaiðkana líka talin ein af frumþörf-
um samfélagsins, og i engu sparað til þess
að skapa almenningi sem besta aðstöðu
í þeim efnum.
Margskonar alþjóðlegt samstarf er í
gangi á sviði íþróttamála, og íþróttaleg
samskipti þjóða i milli fara stöðugt vax-
andi. Evrópuþjóðir ræða nú um gerð
iþróttasáttmála sín á milli, sem fæli í sér
einskonar rammaskipulag og mótun
heildarstefnu í uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja og framkvæmd íþróttastarfs-
ins, þar sem höfuðáhersla væri lögð á al-
mannaiþróttir, „íþróttir fyrir alla“. —
Hver á ekki sína íþrótt? Öll höfum við
eitthvert mark að keppa að, í hinum ólik-
legustu efnum. Oft er líka erfitt að skil-
greina orðið iþrótt eða athöfn þá sem til
iþrótta mætti teljast, sömuleiðis iþróttir
og listir; svo fullkomnu valdi og fáguðu
geta menn náð í íþrótt sinni, að um
hreina listsköpun sé að ræða. í sjö áratugi
hefur ungmennafélagshreyfingin á ís-
landi leitast við að ala með þjóðinni
íþróttavakningu, og áhuga fyrir almennri
líkamsrækt. Landsmót eru haldin til þess
að gera úttekt á getu afreksfólksins, stað-
ið hefur verið að byggingu íþróttamann-
virkja af ýmsu tagi, í sumum tilfellum
félögin ein sér þó miklu oftar í samvinnu
við sveitarfélögin. Það væri ósanngjarnt
að segja að lítið hefði áunnist í þessum
efnum þegar litið er til baka, þótt stöðugt
vaxi kröfugerð um fullkomnari og betri
keppnisaðstöðu og hverskonar mann-
virkjagerð.
Við verðum í framtíðinni að hyggja að
fljótvirkari og hagkvæmnari byggingar-
máta í þessum efnum en verið hefur, og
víst er um það að núverandi mennta-
málaráðherra Vilhjálmur Hjálmarsson
hefur sýnt athyglisvert framtak í þeim
efnum, sem er bygging íþróttamiðstöðvar
Vestmannaeyja, glæsilegt iþróttahús og
sundhöll af fullkomnustu gerð ásamt öllu
tilheyrandi uppbyggt og fullfrágengið á
einu ári. Þá verðum við i framtiðinni sem
hin síðari ár að leggja ríka áherslu á sam-
hliða uppbyggingu iþrótta- og félags-
starfs í félögunum. Afreksfólki okkar á
íþróttasviðinu verður að skapa viðunandi
æfinga og keppnisaðstöðu hér heima og
vinna markvissara undirbúningsstarf á
því sviði en hingað til. Hver hefur ekki
orðið var við það síðustu daga og vikur,
að samfélagið gerir hiklaust kröfur til
þessa afreksfólks okkar, að það standi
sig i keppni við afreksfólk annarra þjóða?
Afreksmenn á sviði íþrótta eru líka stolt
hverrar þjóðar og áhrifamestu sendifull-
trúar í alþjóðlegu samstarfi þegar vel
gengur.
Með hugtökunum almenningsíþrótt eða
íþróttir jyrir alla er átt við hverskonar
líkamlega þjálfun eða hreyfingu, sem
miðar að því að viðhalda almennri heil-
SKINFAXI
33