Skinfaxi - 01.12.1976, Side 36
framþróun og uppbyggingu þeirra. Ef
ekki tekst á næstu árum að renna styrk-
ari stoðum undir fjárhagslegan rekstur
slíkra samtaka hérlendis, eins og gerist
með öðrum menningarþjóðum, horfir illa
um þennan mjög svo nauðsynlega þátt
í uppeldiskeðjunni, sem ég tel íþrótta- og
æskulýðsmálin vera.
Eldri félögum kann að finnast þetta
hrokafull heimtufrekja, ekki hafi alltaf
verið svo mikið til þess að moða úr í
gamla daga nema gnægð hugsjóna, og
góður vilji. Allt slikt er til staðar í dag,
og þegar ríkisvaldið og þeir sem pen-
ingunum ráða hafa keppst við að
reisa bankahallir og fjárgeymslur yfir
peninga sem þó eru ekki til, höfum
við haldið áfram að leggja inn á hug-
sjónabanka hreyfingarinnar, sem frum-
herjarnir reistu i öndverðu. Allt of lítið
af þessari innistæðu hefur enn sem komið
er þótt þess vert að ávaxta samkvæmt
framansögðu. En þegar litið er til baka
yfir 70 ára starf megum við ungmenna-
félagar þó vel una okkar hlut. Ég hygg
að spor hreyfingarinnar megi víða rekja
í framkvæmdasögu byggðarlaganna og á
framabraut einstaklingsins. En það þjón-
ar engum tilgangi jafnvel fyrir hugsjóna-
menn að loka augunum fyrir þvi að við
lifum breytta tíma frá þvi sem áður var,
við lifum í þjóðfélagi peninga og vaxandi
samkeppni og auglýsinga; enginn getur
snúið sér við til framkvæmda né athafna
nema fyrir peninga.
Ungmennafélagsforustan á íslandi í
dag hefur heitið því að aðlaga ung-
mennafélagshreyfinguna breyttum tíma
en daga ekki uppi eins og nátttröll.
Hvernig til tekst um alla framkvæmd, er
undir ykkur komið, góðir ungmennafélag-
ar. Forustumenn ungmennafélaganna á
íslandi hafa lengst allra haldiö í áhuga-
mennskuna, og enn byggist verulegur
hluti okkar starfs á þegnskap félaganna
og fórnarlund, en kapphlaupið um það
að hafa í sig og á leyfir vart lengur að
menn þurfi að gefa með sér stórfé til þess
að fá sæmilega séð fyrir rekstri hreyfing-
arinnar. Og þess vegna verðum við oft
fyrr en ella að sjá á bak góðum starfs-
kröftum og félögum.
Að lokum þetta, góðir tilheyrendur:
leggið rækt við íþrótta- og æskulýðsstarf-
ið, betri fjárfestingu getur þjóðin ekki
lagt út í, arður þess starfs og fjármagns
mun óðar en varir skila okkur betra þjóð-
félagi.
íslandi allt — góða skemmtun.
36
SKINFAXI