Skinfaxi - 01.12.1976, Blaðsíða 37
Minning tveggja ungmennafélaga
Guðmundur Kr.
Guðmundsson
F. 20. júlí 1890. — d. 28. sept. 1976.
Guðmundur var fæddur aö Urriða-
fossi, Villingarholtshreppi, Árnessýslu.
Um fermingaraldur fluttist hann til
Reykjavíkur. Hann hreifst snemma af
íþróttum og gerðist fljótt eftir stofnun
Umf. Reykjavíkur félagi þess. Að
tveimur íþróttamannvirkjum vann fé-
lagið á fyrstu árum sínum: Skíðabraut
norðan Hafnafjarðarvegar í vestur-
hlíð Öskjuhlíðar og sundskála við
Grímsfjarðarholtsfjörur við Skerja-
fjörð. Guðmundur var sá ungmenna-
félaga, sem lagði fram hvað mesta
þegnskaparvinnu við þessi mannvirki.
Hann keppir sem ungmennafélagi
i fyrstu sundkeppni hér í Reykjavik,
íslandssundinu. Einnig keppti hann
í Nýjárssundinu (milli bryggju í
Reykjavíkurhöfn á Nýjársdags-
morgni), Skjaldarglímu Ármans, ís-
landsglímu og þriðja Landsmóti UMFÍ
í Reykjavík 1914. Á því móti varð hann
stigahæstur. Hann var 1912 einn
þeirra glímumanna er sýndu glímu á
ólympíuleikunum í Stokkhólmi. Ung-
mennafélög í S-Þingeyjarsýslu starf-
ræktu að vorlagi 1915 íþróttanámskeið
að Breiðamýri og fengu Guðmund,
sem þá var fjölhæfasti og glæsilegasti
íþróttamaður þjóðarinnar, til þess að
vera þar aðalkennara. í 50 ára sögu
HSÞ er þáttar Guðmundar Kr. verðug-
lega minnst og stjórn HSÞ bauð hon-
um til afmælisfagnaðarins.
Guðmundur Kr. var einn af höfund-
um Glímubókar ÍSÍ, sem út kom 1916.
UMFÍ skipulagði ungmennafélögin
í upphafi í fjórðungssambönd. Var
Guðmundur Kr.
Guömundsson.
Guðmundur Kr. um árabil í stjórn
Fj órðungssambands Sunnlendinga.
Við heimsókn Kristjáns X konungs
hingað út 1921 var efnt til Konungs-
glímu á Þingvöllum og var Guðmundi
Kr. dæmdur sigur í þeirri glímu og
afhenti konungur honum fagran bik-
ar.
SKINFAXI
37