Skinfaxi - 01.10.1977, Blaðsíða 3
SKINFAXI 1
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVIII. árgangur — 5. hefti 1977
Ungmennafélag Islands 70 ára
Á sambandsráðsfundinum sem haldinn
var á Dalvík í okt. 1976, var samþykkt
að stefnt skyldi að því að 30. þing UMFÍ
yrði haldið á Þingvöllum, þótti það vel
hæfa á þessu sjötugasta afmælisári að
minnast þessara tímamóta á þessum
merka stað þar sem samtökin höfðu ein-
mitt litið dagsins Ijós.
Þessi samþykkt er nú að veruleika
orðin og þingið að baki, þing sem á
margan hátt bar það með sér að menn
voru í hátíðaskapi, en jafnframt fullir
bjartsýni og áhuga á þeim störfum sem
bíða þeirra í dag og næstu framtíð.
Mörg merk mál bar á góma og litu
dagsins Ijós í tillöguformi, það var al-
mennt samdóma álit manna að starfsemi
og umsvif UMFÍ fari stöðugt vaxandi og
að þörfin fyrir hentugt húsnæði í eigu
samtakanna verði að sama skapi æ
brýnni. Þrastaskógur eign UMFÍ kom
einnig til umræðu, og þeir möguleikar
sem hann býður upp á, ef unnt verði að
koma þar upp aðstöðu til dvalar og æf-
inga fyrir hina ýmsu hópa íþrótta- og
áhugafólks ungmennafélaganna í landinu.
Hinnar nýju stjórnar bíða því mörg stór
verkefni, sem eiga það sameiginlegt að
þurfa mikils fjármagns við, það er því
vonandi að hinn aukni skilningur fjár-
veitingavaldsins nú síðustu árin, á nauð-
syn þess félagsskapar sem fylkir sér
undir merki UMFÍ, leiði af sér enn hærri
fjárframlög honum til handa á næstu ár-
um.
Það er Ijóst að til þess að svo megi
verða, verður öll forysta félagshreyfingar-
innar í landinu að leggja sitt að mörkum
og sýna það í verki hvers hún er megnug.
Gunnar Kristjánsson.
SKINFAXI
3