Skinfaxi - 01.10.1977, Blaðsíða 19
Hér verða ekki að þessu sinni rakin
æviágrip Sigurðar Greipssonar, þau
standa skráð á spjöld sögunnar, og eru
yfir hversdagsleikann hafin. Við fær-
um afmælisbarninu hugheilar kveðj-
ur, og þakkir fyrir forystuhlutverk
hans og leiðsögn innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar, og heitum því
að standa vörð um og efla eftir föng-
um þær hugsjónir, sem hann mótaði
og hefur lagt grunninn að á viðburðar-
ríkri starfsævi. Enn er hugurinn bund-
inn starfi og stefnu ungmennafélag-
anna og enga hvatningu metum við
meira en hans.
Hafsteinn Þorvaldsson,
form. UMFÍ.
Hússjóður UMFÍ
í sambandi við tillöguna sem sam-
þykkt var á þinginu um að UMFÍ
eignaðist húsnæði sem fyrst brugðu
nokkrir fulltrúar við hart og títt og
lögðu fram fé í sjóð er verja skuli til
fjármögnunar þessu fyrirtæki.
Þeir sem lagt hafa fram fé í þessum
tilgangi eru:
Ónafngreindur frá Selfossi 10.000,- kr.
Héraðssamb. S-Þingeyinga 50.000,-
Ungmsamband Eyfirðinga 50.000,---
Þess skal að lokum getið að framlög
þau sem berast í sjóð þennan verður
jafnharðan getið á síðum Skinfaxa
þannig að lesendur geti fylgst með
framvindu sjóðsins.
Fjármál verða
mikið í deiglunni
á næstunni — héi
gefa þeir Haf-
steinn og Sigurðui
fjárhagsnefnd góð
ráð.
Húskaupanefnd skipuð
í samræmi við samþykktir afmælis-
þingsins hefur verið skipuð þriggja
manna nefnd, í nefndinni eiga sæti
þeir Pálmi Gíslason, UMSK form.
Valdimar Óskarsson, UV og Gunnar
Sveinsson, UMFK. Þetta eru allt gal-
vaskir menn og eru þegar teknir til
óspilltra málanna.
Keppni milli héraðssambanda
Sunnudaginn 21. ágúst 1977 háðu
HSS og UDN með sér frjálsiþrótta-
keppni á íþróttavellinum við Tjarnar-
lund í Saurbæ.
Veður var gott til keppni en dálítil
gola. Mótsstjóri var Svanbjörn Stef-
ánsson. Keppni þessi er stigakeppni
og lauk henni með sigri Dalamanna
sem hlutu 166 stig en Strandamenn
fengu 111 stig.
SKINFAXI
19