Skinfaxi - 01.10.1977, Blaðsíða 18
Siguröur Greipsson var meðal gesta á af-
mælisþinginu, hér er hann á tali við Þór-
odd Jóhannsson og frú.
Sigurður Greipsson,
80 ára
Mánudaginn 22. ágúst sl. átti Sig-
uröur Greipsson, í Haukadal, 80 ára
afmæli.
Á afmælisdaginn var gestkvæmt og
glatt á hjalla í Haukadal, hjá þeim
heiöurshjónum Sigurði og Sigrúnu,
eins og svo oft áður, við slík tækifæri.
Nemendur, vinir, starfsmenn, og sveit-
ungar voru þar samankomnir og um
kl. 15.00 fylktu þeir liði við anddyri
gamla skólahússins undir stjórn Þor-
steins Einarssonar, íþróttafulltrúa og
gengu síðan í íþróttasalinn nýja, til
móts við hinn áttræða höfðingja og
fjölskyldu hans. í fararbroddi gengu
tveir fánaberar, með íslenska þjóð-
fánann og hvítbláan fána ungmenna-
félaganna, og sungu göngumenn við
raust ÖXAR VIÐ ÁNA.
Er í salinn var komið flutti séra
Eiríkur J. Eiríksson, fyrrverandi for-
maður UMFÍ ávarp til Sigurðar fyrir
hönd göngumanna, og annarra við-
staddra, og var það hressilegt og
snjallt ávarp, eins og hans var von og
vísa. Að þessari innsetningu lokinni,
var sest að veglegum veisluborðum
þeirra Haukadalshjóna, ávörp voru
flutt, með almennum söng, á milli,
undir stjórn Sigurðar Erlendssonar
bónda á Vatnsleysu.
Er gestir höfðu þegið góðgerðir var
haldið inn í Haukadal í fegursta veðri,
og gróðurríkar hlíðar dalsins augum
litnar undir leiðsögn Sigurðar Greips-
sonar. Þá var gengið að minnisvarð-
anum sem nemendur Sigurðar reystu
honum hér á föðurleyfð hans í Hauka-
dal fyrir hart nær 10 árum. Við minn-
isvarðann kom allur hópurinn saman
og þar voru sungin ættjarðarljóð í
fjallakyrrðinni, og hinu fagra skógar-
rjóðri um hverfis varðann.
Þá var haldið á ný niður á Sanda,
og nú komið saman í Gula-salnum
kennslustofu íþróttaskólans í Hauka-
dal, þar sýndi Þorsteinn Einarsson
kvikmynd frá 12. Landsmóti UMFÍ
sem haldið var í umsjá Skarphéðins
að Laugarvatni sumarið 1965, en þá
var Sigurður Greipsson enn formaður
HSK. Að lokinni sýningu var boðið
upp á veitingar á ný, og þá flutti Sig-
urður þakkir til gestanna fyrir kom-
una, og vinum sínum þakkir fyrir gott
samstarf og ánægjulegar samveru-
stundir fyrr og síðar.
Við sem komum til fjölskyldunnar
í Haukadal þennan fagra sumardag,
höfum enn bætt einum sólargeisla í
sögu minninganna frá nærveru okkar
við leiðtogann virta, og staðinn sem
við eigum svo mikið að þakka, og fáum
seint goldið sem vert er.
18
SKINFAXI