Skinfaxi - 01.10.1977, Page 11
Við háborðið. F.v. Hermann Guðmundsson
frkvstj. ÍSÍ og frú, Þorsteinn Einarsson og frú,
Reynir Karlsson og frú, Sigurður Greipsson,
Hafsteinn Þorvaldsson og frú, Sr. Eiríkur J.
Eiríksson og frú, Daniel Ágústínusson og frú
og Sigurður Geirdal og frú.
Hafsteinn Þorvaldsson sæmir Jónas Ingimund-
arson og Eystein Þorvaldsson starfsmerki
UMFÍ.
Jónas Ingímundarson stjórnar almennum söng.
Nokkrir þingfulltrúar teknir tali
Þegar þinghald var langt komið síð-
ari daginn, fór Skinfaxi á stúfana til
að inna þingfulltrúa eftir áliti þeirra
á nokkrum málaflokkum.
Fyrst var leitað til nokkurra for-
manna héraðssambanda og þeir beðnir
um að segja álit sitt á eftirfarandi
samþykktum þingsins.
1. Eftir 70 ára starf hefur UMFÍ ekki
eignast eigið húsnæði fyrir starfsemi
sína. 30. þing UMFÍ telur að við þetta
megi ekki una lengur, felur þingið því
stjórn samtakanna að skipa nú þegar
þriggja manna nefnd til að vinna að
framgangi málsins skal sú nefnd í
samráði við stjórn finna sérstakar
fj áröflunarleiðir til þessa.
2. 30. þing UMFÍ ítrekar ályktanir
SKINFAXI
11