Skinfaxi - 01.10.1977, Síða 12
fyrri sambandsþinga UMFÍ um nauð-
syn þess að hvert héraðssamband hafi
á að skipa launuðum starfsmanni.
Bendir þingið á að starf þeirra sam-
banda sem ráðið hafa starfsmann hef-
ur eflst og skipulagsmál komist í betra
horf. Þingið beinir því til sveitar-
stjórna sýslunefnda og annarra opin-
berra aðila, að þeir geri sér ljóst mikil-
vægi öflugs æskulýðsstarfs. Þingið tel-
ur því eðlilegt að fyrrgreindir aðilar
launi þennan starfsmann.
2. — í þrjú sumur höfum við hjá USAH
haft launaða starfsmenn um þriggja
mánaða skeið í senn. Árangur af
starfi þessara manna hefur verið mik-
ill og vona ég að okkur auðnist að
halda áfram á sömu braut. Með laun-
uðum starfsmanni má koma mun
betra skipulagi á starfsemina og stór-
auka sjálfboðastarfið á ýmsum svið-
um. Ég er mjög sammála ályktuninni
að eðlilegast væri að opinberir aðilar
launuðu þessa starfsmenn og tel að
vinna verði að því máli.
Magnús Ólafsson, form. USAH.
1. — Húsakaup hafa lengi verið á dag-
skrá og margir verið þeirri tillögu
fylgjandi. Áhuginn fyrir þeim hefur
aukist mjög síðustu árin jafnframt
því sem þjónustustarfsemi UMFÍ hef-
ur vaxið. Nú er svo komiö, að mínu
mati, að ófært er að fresta þessu máli
lengur. Því er ég mjög ánægður með
samþykkt þingsins og vona ég að
stjórnin og nefndin finni leiðir til þess
að leiða mál þetta fljótt og farsællega
til lykta.
Kristján Jónsson, form. HSK.
1. — Jú mér finnst það alveg rétt að
UMFÍ eignist eigið húsnæði og þá ein-
mitt í Reykjavík, vegna þess að þar er
miðstöð landsins, um það þarf ekki að
deila.
Ég trúi ekki öðru en að allir ung-
mennafélagar á landinu leggist á eitt
til þess að þetta megi takast.
2. — Ekki er ég alveg sáttur við að
Héraðssamböndum sé nauðsyn á að
hafa starfsmann. En þrátt fyrir það er
miklu léttara að reka sambandið ef
12
SKINFAXI