Skinfaxi - 01.10.1977, Page 14
Svinn Vilhjálmss.
Sveinn Vilhjálmsson,
fulltrúi frá UMSK.
— Þetta afmælisþing mótast að
sjálfsögðu að mestu leyti af landsmóti
UMPÍ sem fram fer næsta sumar.
Þetta mál er vitanlega það mál sem
efst er á baugi. En þó tel ég að annað
mál sem er öllu merkilegra hafi ekki
fengið nógu mikla umræðu og virðist
ekki sýndur nógu mikill áhugi kannski
mest vegna svartsýni á að það mál nái
fram að ganga á næstu árum. Og það
er fasteignakaup UMFÍ. Þar sem UMFÍ
gæti komið sér upp verulega bættri
þjónustu við aðildarfélögin sín eins
konar þjónustumiðstöð, sem væri
stærri í sniðum en núverandi skrif-
stofa UMFÍ. Þetta mál t.d. tel ég vera
það merkasta og hlýtur að vera mjög
til umræðu í náinni framtíð og er von
mín að þetta mál snúist í jákvæða átt
undir kjörorðinu BÆTT AÐSTAÐA —
BETRI ÞJÓNUSTA.
Emil Björnsson, fulltrúi UÍA.
— Að sjálfsögðu ber hæst þá ákvörð-
un þingsins að stjórn UMFÍ fari að
leita sér að húsnæði fyrir samtökin. Er
það mikilvægt skref í þeirri viðleitni
UMFÍ að bæta ennfremur þjónustu
sína við aðildarfélögin. Einnig er
ánægjulegt að sjá að mikill hugur
virðist vera á því hjá þingfulltrúum,
að herða á nýjan leik baráttu gegn
reykingum og neyslu á öðrum vímu-
gjöfum. Að lokum vil ég lýsa ánægju
minni með þá ákvörðun þingsins að
stefnt skuli að ráðningu þjálfara í
frjálsum iþróttum með aðsetur i
Reykjavík. Á þennan hátt verður síð-
ur hætta á því að frjálsíþróttafólk
utan af landi sem dvelur þar við vinnu
og nám ánefnist félögum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Halldóra
Gunnarsdóttir.
14
SKINFAXI