Skinfaxi - 01.10.1977, Page 16
Þingvísur
Á UMFÍ þinginu kom það nokkrum
sinnum fyrir að þingforseta bárust
stökur í hendur í tilefni þess að ræðu-
mönnum hafði hrotið ýmis spakmæli
af vörum. Um höfunda þessara vísna
er ekki vitað og eru þær því birtar hér
án leyfis þeirra.
í tilefni af einni af ræðum Jóns
Guðjónssonar, HVÍ, barst þessi vísa.
Feginn vildi ég yrkja óð
um þig kæra Lilja,
Röddin mjúk og morgun góð,
menn þig allir skilja.
í því sambandi má geta þess að Lilja
Steingrímsdóttir hafði hafið störf að
nýju á skrifstofu UMFÍ skömmu fyrir
þingið.
Vegna málflutnings tveggja þing-
fulltrúa að loknum kvöldverði á laug-
ardeginum urðu þessar vísur til.
Enn er listin söm við sig,
senn ég jafna metin,
en aldrei hef ég yfir mig,
Ófeigur minn étið.
Yfirlýsing eina gaf,
einn í þessum sölum,:
„Nú er fólki ógnað af
ýmsum stórum bölum.“
Á meðan umræður um tillögur frá
einni nefndinni stóðu sem hæst var
skotið inn þessari vísu:
Lilja eykur lífsins kraft,
á Lilju vil ég minna.
Þegar aðrir þenja kjaft,
þá er hún að vinna.
En Lilja var við vélritun og fjölritun
þann tíma sem þessu fór fram.
Lilja Steingríms-
dóttir var vinsæli
yrkisefni.
Nýstofnað ungmennafélag
Á þessu ári hafa tvö félög og eitt
samband hlotið beina aðild að UMFÍ,
þ.e. Ungmenna- og íþróttabandalag
Ólafsfjarðar, Ungmennafélagið Djúp-
verji við ísafjarðardjúp og nú síðast
eða skömmu fyrir þing Ungmenna-
félagið Geislinn á Súðavík sem var
stofnað fyrr á þessu sumri. For-
maður Umf. Geisla er Egill Heiðar
Gíslason, mætti hann á afmælisþingið
sem fulltrúi síns félags.
Skinfaxa lék forvitni á að fregna
nánar af hinu nýstofnaða félagi og
lagði því nokkrar spurningar fyrir
hinn unga formann:
16
SKINFAXI