Skinfaxi - 01.10.1977, Page 17
— Hver voru tildrögin að stofnun
ungmennafélagsins?
—• Tildrögin voru fyrst og fremst
þau að okkur félagshyggjumönnum á
Súðavík fannst félagslíf mjög bág-
borið í okkar byggðarlagi og að það
þyrfti viðreisnar við. Þá viðreisn var
aðeins hægt að framkvæma með
stofnun félags og þá á það breiðum
grundvelli að það næði til sem flestra
sviða, og um leið til hinna ýmsu ald-
urshópa. Ungmennafélag varð því
niðurstaða okkar þar sem víðtækt svið
þess hentaði best okkar litla og vax-
andi byggðarlagi.
— Hvenær var svo félagið stofnað?
— Stofnun fór þannig fram að boð-
að var til fundar með áhugamönnum
6. júlí sl. Á þessum fundi var kosin
undirbúningsnefnd og þessi nefnd
boðaði síðan stofnfund 27. júli sl. Á
þessum fundi var Umf. Geisli stofnað-
ur og voru stofnfélagar 37 á aldrinum
10—28 ára.
— Er áhugi fyrir félagsmálum á
Súðavík?
— Já, áhugi er fyrir hendi en það
þarf stórátak til þess að kynna fólki
hér félagsmál þar sem það er ekki
nógu vel upplýst í þeim efnum og er
ég þeirrar skoðunar að Félagsmála-
skóli UMFÍ gæti komið þar að góðum
notum, til þess einfaldlega að opna
hug þess fyrir því hvernig það eigi og
geti starfað.
— Hvernig er aðstaða á Súðavík?
— íþróttaleg aðstaða er mjög bág-
borin vægast sagt, þar sem aðeins er
um að ræða 40 m langan grasvöll ef
hægt er að kalla hann því nafni. Hvað
félagslegu hliðina snertir þá má segja
T.v. Egill H. Gíslason form. Umf. Geisla.
að við búum nokkuð vel. Við höfum
greiðan aðgang að félagsheimili stað-
arins svo og þeirri aðstöðu sem er í
frystihúsinu. Við erum því ánægðir
með þessa hlið málsins.
— Hvernig verður svo starfinu hátt-
að?
— Það er ætlunin að reyna að hafa
það sem fjölbreyttast t.d. með fundar-
höldum, skemmtunum, ýmsum mótum
eins og tafl og borðtennis svo eitthvaö
sé nefnt, en allt er þetta háð félögun-
um sjálfum, sem vissulega eru undir-
staða starfseminnar.
Minjagripir
í tilefni af 70 ára afmæli UMFÍ lét
stjórnin útbúa tvo minjagripi, er þar
annars vegar um að ræða barmmerki
UMFÍ og hins vegar postulínsvasa,
með ábrenndu merki UMFÍ en fyrir
neðan það stendur 70 ára. Gripir þess-
ir verða til sölu á skrifstofunni og
kosta:
Barmmerki UMFÍ 1.000,- kr.,
Postulínsvasi 1.200,- kr.
SKINFAXI
17