Skinfaxi - 01.10.1977, Qupperneq 23
unglingum á aldrinum 11—14 ára, sem
eru innan vébanda íþróttahreyfingar-
innar á Vestfjörðum, heimil þátt-
taka. Mótið fór fram á Þingeyri 30.
og 31. júlí. Á mótið mættu keppend-
ur frá HVÍ ÍBÍ, Hrafnaflóka og
Umf. Bolungarvíkur. Var keppni þessi
stigakeppni og lauk henni með sigri
HVÍ sem hlaut 255 stig ÍBÍ var í öðru
sæti með 79 stig, Hrafnaflóki í þriðja
með 30 stig en Umf. Bolungarvíkur
rak lestina með 18 stig. Héraðssam-
bandið hélt einnig sitt árlega héraðs-
mót að Núpi dagana 16. og 17. júli.
Þar voru mættir garpar að sunnan
eins og Hreinn Halldórsson, Friðrik
Þór Óskarsson, Sigurður Sigurðsson,
Elías Sveinsson og Magnús Jónsson,
til að etja kappi við þá Vestfirðinga,
en ekki fóru þeir allir þaðan ósigraðir.
Myndirnar hér á sið-
unni eru frá Héraðs-
mótinu. Efst t.h. Guð-
mundur Björgvinsson
sigurvegari í 800 m hl.
Sighvatur Guðmunds-
son í öðru sæti. —
í miðið frá vinstri
Emil Hjartarson, Hall-
dór Kristjánsson og
Gunnar Pálsson. —
Neðst til hægri Ang-
antýr Jónasson kemur
í mark sem sigurveg-
ari í 100 m hlaupinu.
Sig. Sig. Á. er i öðru
sæti, Jón Oddsson
þriðji.
SKINFAXI
23