Skinfaxi - 01.10.1977, Qupperneq 25
mun haft félagsheimilið' Árgarður í
Skagafirði, þar sem ég þekki bezt til.
2. Fræð'sla:
Margs konar fræðsla á vegum fé-
laga fer fram í heimili þeirra. Reynsla
byggða, þar sem ekki er félagsheimili
eða það er notað fyrir almenna skóla-
kennslu, er sú, að erfitt sé að finna
slíku stað og stund. Tæmandi upp-
talning á möguleikum til námskeiða-
halds yrði allt of löng. En til að miða
við Árgarð skal talin handavinna, leir-
munagerð, bókleg fullorðinsfræðsla,
félagsmálanámskeið og leikfimi.
3. Listir:
Með svonefndri list um landið var
leitazt við að veita dreifbýlinu af list-
menningu höfuðborgarinnar. Menn-
ingarsjóður félagsheimila var tryggð-
ur 1970 með því, að 10% af tekjum
félagsheimilasjóðs skyldi renna til
hans. En tilgangur sjóðsins er að
stuðla að aukinni menningarstarfsemi
í félagsheimilum, sem oft hefur þótt
af skornum skammti. En það, sem vel
er gert i því efni, hefur þó verið van-
metið. Sjálfsögð þegnréttindi eru nú
talin að fá notið lista í straumum og
stefnum þjóðfélagsins, og eru félags-
heimilin í mörgu tilviki sú aöstaða,
sem gerir það fært í sveitunum. Þá
geta einstakar byggðir haft menning-
arleg sérkenni og mótast listsköpun
þeirra og hneigð af því. Má þar minn-
ast heimafenginnar hollustu, enda
varðar meiru að glæða listsmekkinn
og viljann til að veita í því efni með
hverjum einum, heldur en eingöngu
að hlusta og vera þiggj andi. Þannig er
skemmtiatriðum sem betur fer varið
í sveitinni enn. Það virðist þó fara
minnkandi, því að aðkeyptir skemmti-
kraftar verða æ meir áberandi.
Varla eru i nokkru öðru landi svo
mörg leikfélög eða áhugamannafélög,
sem setja leikrit á svið í leikhúsum og
Guðrún L. Ásgeirsdóttir, Mælifelli.
félagsheimilum. Aukinn stuðningur
þjóðleikhúss skv. nýja frumvarpinu
mun víða auðvelda framkvæmdir, t.d.
hvað áhrærir leikmunasafn og útveg-
un leikstjóra.
4. íþróttir:
íþróttalög frá 1940 voru með fyrstu
sambærilegum um lögboöinn stuðning
við íþróttastarf, lögleidda sundskyldu
o'.fl. Mikilvægt er að samnýta íþrótta-
húsnæði skóla og hins frjálsa iþrótta-
starfs félaga, fjárhagslega og félags-
lega skoðað. Æskilegt að hafa um
leið sundlaug í tengslum þar við, og
hátíða og keppnissvæði úti. Veröur
slík menningarmiðstöð og skóli oftast
um leið miðpunktur eða kjarni byggð-
ar. Má minna á gagnorðar tillögur frá
fjórðungsþingi Norðurlands 1975 um
þessi mál, en þær voru m.a. um, að
félagsheimilisbyggingar verði hannað-
ar með sem víðtækust afnot i huga og
um að leggja beri áherzlu á meiri sam-
skipti skóla og félaga innan héraða
með gagnkvæmum heimsóknum til
keppni og kynningar.
Sjálfsagt er, að félagsheimili sé
byggt á jarðhitasvæði, þar sem heitt
vatn fyrirfinnst í byggðarlagi, jafnvel
k
SKINFAXI
25