Skinfaxi - 01.10.1977, Blaðsíða 26
þótt það þyki ekki miðlægt. Þar sem
heita vatnið er, á kjarninn að vera.
Eins og áður er að vikið, er nauðsyn-
legt að við félagsheimilið sé sem fjöl-
breyttust íþróttaaðstaða. Ungmenna-
félagar koma henni endranær upp og
nota hana mest í starfi sínu og tengir
það unga fólkið félagsheimilinu og
verður til ýmiss konar hagræðis við
mót og keppnir, t.d. gagnvart veitinga-
sölu. Og enn má nefna um útihátíða-
svæði, að þægilegt er að stutt sé að
fara, þegar flýja þarf undir þak, sem
svo algengt er hér á landi.
5. Tónlistarskóli:
Með tilkomu laga um fjárhagslegan
stuðning við tónlistarskóla 1962 og enn
1976 breyttist aðstaða til þeirrar miklu
og menningarlegu fræðslu víða um
land. Og enn eru stofnaðir nýir slíkir
eins og í sveitum Skagafjarðar sl.
haust. Er það stórt skref í átt til fjöl-
breyttara félagslífs og listskynjunar.
Undirstöðuatriði fyrir skilning á nota-
gildi er ætíð nám. Félagsheimili auð-
velda starfsemi tónlistarskóla, enda
eru þar gjarna til beztu hljóðfærin, og
þar margar vistarverur, oft í nálægð
skóla eins og viðmiðunarstað okkar.
6. Skóli:
Árgarður er rúmlega 40% skólahús-
næði og er því i eigu ríkis að stórum
hluta. Skólaafnot eru aðallega leik-
fimikennsla í sal, en einnig er tón-
mennt kennd við nýjan flygil, og á
sviði hússins skemmta börn og ungl-
ingar á árshátíð og samkomum skól-
ans, enda enginn salur í Steinsstaða-
skóla. Samstarf verður því allmikið
milli skólastjóra og húsnefndar og
hefur gengið vel. Mun svipað vera
víðar, enda sjálfsagt og hagkvæmt að
skipuleggja nýtingu opinberra bygg-
inga sem bezt.
7. Einkaafnot:
Veizlur ýmiss konar og erfidrykkjur
eru fastur þáttur í notkun félagsheim-
ila í sveitum. Einkaaðilar taka hús-
næðið á leigu og undirbúa sjálfir í
eldhúsi eða fá til þess það félag, sem
venjulega annast veitingar í heirnil-
inu. Oftast munu það vera kvenfélög
vegna ötulleika þeirra við fjáröflun og
skilnings félagskvenna á þörf vinnu-
samra handa í eldhúsi. Er mjög já-
kvætt, að heimili félaganna séu þann-
ig einnig heimili einstakra meðlima
þeirra og annarra, enda íslendingar
veizluglaðir og fjölmenni oft meira
en venjulegt heimili rúmar með auð-
veldu móti, þótt víðast auki hjarta-
rúmið á.
Til þess að einkasamkvæmi verði
notaleg í sölum félagsheimilis verður
að leggja áherzlu á að gera sali, hús-
búnað og ekki sízt borðbúnað þannig
úr garði, að aðlaðandi megi teljast.
Lögð skyldi áherzla á, að til séu fyrst
og fremst dúkar, einnig kertastjakar,
blómavasar og fleira það, sem ekki
væri til sparað í svipuðum fagnaði á
venjulegu heimili. Dúklausu plast-
plötuborðin við hin ýmsu og oft há-
tíðlegu tækifæri eru ömurleg ómenn-
ing.
8. Fjáröflun:
Húsaleigutekjur, öl- og sælgætis-
í
26
SKINFAXI