Skinfaxi - 01.10.1977, Blaðsíða 27
sala eru aðaltekjustofnar félagsheim-
ila, auk þess sem sum þeirra halda
sjálf samkomur til fjáröflunar. Er því
höfuðatriði, að eigendur og aðrir noti
húsin sem mest og taezt, svo að rekstur
beri sig frekar. Félögin afla sér um
leið fjár og verða þessir þættir því
samverkandi. Víða hefur komið fram
í málflutningi, að ema starfsemi í fé-
lagsheimilum til sveita séu danssam-
komur og þær miður þokkaðar. Við,
sem hér erum, vitum, að þetta er ekki
rétt. Leitt er til þess að vita, að al-
mennir dansleikir skuli þurfa að vera
svo neikvæðir, sem raun taer vitni, svo
skemmtileg íþrótt sem dansinn er.
Sá þáttur fjáröflunar, sem um leið
er nauðsynleg þjónusta í fámennu
byggðarlagi, er veitingasala. Til að
auðvelda hana og laða að, er mikil-
vægt, að eldhús félagsheimilis sé vel
og hagkvæmlega búið. Og ekkert er
eðlilegra en að félagið, sem mest not-
ar eldhúsið, leggi framlög sín til bygg-
ingarsjóðs að hluta fram í ýmsum
þeim munum, sem ómissandi eru við
veitingasölu og framreiðslu. En til þess
að það geti gengið, verður skilningur
hinna eigendanna að vera fyrir hendi.
Kvikmyndasýningar eru og ein að-
ferð fjáröflunar, félagsvist, bingó og
ýmiss konar önnur skemmtan, sem of
langt yrði upp að telja. Margir eru
reiðubúir að fórna tíma og erfiði i fé-
lagsstarfi og til að leggja góðum mál-
efnum lið og hugsa þá fremur um
ánægju en gróða.
Látum hér staðar numið um marg-
þætta kosti og notagildi, sem þekkist
í rekstri félagsheimila, þótt margt sé
ótalið, og víkjum aðeins að því, sem
teljast mega agnúar.
B — 1. Löggæzla og skattlagning:
Gríðarmikið fjármagn þarf að koma
í kassann, til að ágóði megi verða af
skemmtun, sem útheimtir löggæzlu.
í þéttbýli er löggæzla ókeypis nema
dyraverðir, en í sveitum greiða sam-
komuhaldarar y2 launa löggæzlu-
manna nema þess fyrsta. Eru oft
sendir miklu fleiri lögregluþjónar en
þörf virðist á, eins og dæmin sanna.
Reglugerð mun vera á leiðinni um
þessi mál, vonandi til bóta.
Nýlega kom fram, að undanfarið
hefur verið innheimtur söluskattur
af allri fjáröflun félaga á Suðurlandi.
Er full ástæða til að vara yfirvöld við
að skattleggja sjálfboðavinnu félaga,
sem verja tekjum sínum til menning-
ar- og mannúöarmála. Dregur slíkt úr
frjálsu félagsstarfi og ýtir undir dofa
og skeytingarleysi, og gæti orðið ríkis-
kassanum dýrt að lokum.
2. Rekstur og húsaleiga:
Erfitt er að fá endana til að ná
saman í rekstri margra félagsheimila.
Greiðslur svo sem rafmagn, hiti,
tryggingar og laun geta orðið þeim
ofviða. í Árgarði er ókeypis upphitun
og verður það seint ofmetið, enda hef-
ur húsið verið rekið án halla. Einnig
ræður þó þar um, hve mikið af eftir-
litsstörfum hafa verið unnin ókeypis.
Ákvörðun um húsaleigu er afar við-
kvæmt mál í fámennri byggð, og eng-
inn öfundsverður af að neyðast til að
SKINFAXI
27