Skinfaxi - 01.02.1986, Page 3
Eins og lesendur sjá hefur blaðið tekið nokkrum breytingum í útliti og einnig
hvað efni varðar. Því spyrja eflaust margir hvort þörf hafi verið á þessum
breytingum, því er fljót svarað með jái. Fyrir utan þessar breytingar þá höfum
við tekið upp nýja tækni við vinnslu blaðsins. Keypt hefur verið öflug og fjölhæf
tölva ásamt laserprentara, en með þessum tækjum setjum við blaðið og límum
upp hér á skrifstofunni. Þetta hefur í för með sér breytt vinnubrögð við vinnslu
blaðsins ogspamað. Þetta hefur seinkað útkomu þessa blaðs þarsem tíma tekur
að venjast nýjum tækjum og vinnubrögðum.
Þá hefur efni breyst nokkuð og á eftir að breytast meira þ.e. að verða
fjölbreyttara. Nýrþátturhefur bæstíhópinn og er það þáttur um popp, en íþeim
fyrsta errætt við Eirík Hauksson söngvara.
Nokkrar umræður hafa orðið um að leggja niðurþætti sem búnir eru að vera fastir í blaðinu lengi eins
og skák- brids- og vísnaþáttinn. Væri mjög gott að heyra frá lesendum um þetta atriði. Nú þá fylgir
blaðinu smá veggmynd afKristjáni Arasyni handboltamanni, en þessi veggmynd er um leið áskorun tíl
þeirra er reykja að hætta því. Viðtölum hefur fjölgað í blaðinu og er m.a. rætt við forsætísráðherra, þá
hefur uppsetning breyst nokkuð fráþví verið hefur. Nú er það spurningin hvort lesendum líkar þessar
breytíngar, og værí gott að heyra eitthvað um það. íslandiallt
Guömundur Gíslason
I blaðinu ier
•j o n q v* ij;
ú ö 0 5 i
meðal annars:
Þeir kölluðu mig "Big Red"
Staldrað við í Laugaskóla.
Með heila eins og fótbolti í laginu
19. Landsmót UMFÍ.
L U.'jIm
HM í handknattleik.
"SKÍNFÁXÍ
77. árg. 1. tbl. 1986
386553
Útgefandi: Ungmennafélag Islands - Ritstjóri: Guðmundur Gíslason - Stjórn UMFf: Pálmi
Gíslason formaður, Þóroddur Jóhannsson varaformaður, Þórir Jónsson gjaldkeri, Bergur
Torfason ritari, meðstjórnendur: Dóra Gunnarsdóttir, Guðmundur H. Sigurðsson, Diðrik
Haraldsson - Afgrciðsla Skinfaxa: Skrifstofa UMFÍ Mjölnisholti 14, sími:91-14317 - Sctning og
umbrot: Skrifstófa UMFÍ - Filmu og plötugerð: Prentþjónustan hf. -Prentun: Prentsmiðjan RUn sf.