Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 9
og auk þess mættu þau vera með smá sprell á leikjum eins og landsliðið var að gera síðasta sumar. Ég held að æfingaaðstaða hjá íslensku félögunum sé í lagi en ytri aðstæður eru ekki nögu góðar. Það er æft eins og hjá atvinnufélögunum en það er ólaunað. En aðstaðan hjá frjálsíþróttafólki er vægast sagt slæm. Ég hef litið aðeins inn í Baldurshaga og fannst mér aðstaðan hreint afleit. -Hvemig fannst þér staðið að undirbiíningi fyrirHM? -Það hefur verið nokkuð vel staðið að undirbúningi landsliðsins og mikið lagt í hann, en eins og Bogdan hefur reyndar sagt sjálfur, þá hlýtur það að vera slæmt fyrir hann sem þjálfara, þegar hann er að reyna að byggja upp lið sitt að þurfa sjá af strákunum í sjónvarpsauglýsingar og ýmis konar uppákomur. Það hlýtur að vera þnígandi fyrir leikmenn að það er gert of mikill glamor úr þeim fyrir keppnina. Mér fannst það koma í ljós í leiknum á móti Suður-Kóreu að þá vantaði einbeitningu. En þeir hafa sýnt það í síðustu tveimur leikjunum, á móti Tékkum sem eru sennilega í sama klassa og við, og á móti Rúmenum sem eru skrifaðir klassa fyrir ofan og reyndar með eitt af þremur bestu liðum í heiminum, að undirbúningurinn hefur verið geysigóður. -Núna eigum við raunhæfan möguleika á jafnvel að spila um 5-6 sætið. Að vísu er staðan í hinum riðlinum meira afgerandi, Júgóslavar og V-Þjóðverjar virðast vera þar með nokkra yfirburði en £ okkar riðli eigum við nokkuð góða möguleika. Við höfum unnið bæði Svía og Dani á góðum degi en alltaf átt erfitt með þá á stórmótum. Við ættum að geta unnið Ungverja fyrst við unnum Rúmena þannig að við eigum raunhafan möguleika á góðu sæti í riðlinum. Sem betur fer þurfum við ekki að keppa aftur við S-Kóreu. Þeir spila skemmtilegan handbolta og vona ég að þeim gangi vel í keppnum í framtíðinni. Það mundi aðeins rjúfa þann austurblokkar 'Ég spáði jafntefli á móti Tékkum 19-19" Skinfaxi 1. tbl. 1986 "Getum unnið þá ágóðum degi" svip sem hefur einkennt handboltann. Ég er mjög hrifinn af stórskyttu S-Kóreumanna, Kang og hingað til finnst mér hann skemmtilegastur af erlendu leikmönnum HM. Þegar þetta viðtal birtist þá verða úrslit sennilega ráðin í keppninni, en ég læt samt spá mína flakka. Ég var nokkuð sannspár með leikinn við S-Kóreu, ég var búinn að spá 6 marka tapi eins og Geir Hallsteinsson. Ég var búinn að spá jafntefli á móti Tékkum 19-19 þannig að ég var nokkuð nálægt því. En ég var búinn að spá 3 marka tapi á móti Rúmenum, þannig að spádómsgáfa mín hefur farið niður á við. Ætli ég skjóti ekki á að við gerum jafntefli við Ungverja og töpum fyrir Svíum og Dönum. Ég ætla samt að vona að ég hafi ekki rétt fyrir mér. -Uppáhaldsliðið mitt í Ensku knattspyrnunni er Ipswish. Ég sigli frekar Iygnan sjó í botnbaráttunni þessa dagana. Aður fyrr hélt ég mikið uppá Leeds, en Leeds var þá stórveldi í Ensku knattspyrnunni hér áður fyrr ásamt Arsenal og Derby. En þegar Leeds fór að dala fór ég að hafa augastað á Ipswish aðallega út af því að þar átti ég nafna Eric Gailes sem er rauðhærður lubbi eins og ég, en stórskemmtilegur leikmaður enda kom það á daginn að þeir voru með stórskemmtilegt lið. Eg er alveg viss um að þeir eiga eftir að láta mikið að sér kveða á næstu árum þó þeir séu neðarlega þessa dagana. -Ég hef gífurlegan áhuga á körfubolta og mitt álit á þeirri deilu sem kemur oft upp hvort það eigi að hleypa erlendum leikmönnum inn í deildina er að það eigi tvímælalaust að gera það. Það hefur hleypt lífi í körfuboltann. Mér finnst að körfuboltinn sé aftur farinn að dala. Ég man fyrir nokkrum árum þegar byrjað var að hleypa erlendum leikmönnum inn í deildina, þá fór maður í höllina hvað eftir annað og það var alltaf troðfullt. Ég er alveg harður á því að það byggir upp að hafa erlenda leikmenn í liðunum. Mér finnst það gott fyrirkomulag eins og það var að hafa einn erlendan leikmann í hverju liði. -Hvað ertþúað geraþessa dagana? -Ég hef verið að kenna grasafræði í Seljaskóla. Að vísu er það aðeins í forföllum og ég verð að viðurkenna að það er fag sem ég hef ekki mjög mikinn áhuga á. En mér finnst mjög gaman að kenna og á sennilega eftir að gera það í framtíðinni. Næsta vetur fer ég hugsanlega að kenna fög sem ég hef meiri áhuga á eins og tungumál eða eitthvað í þeim dúr. -Fyrir utan það að vera að syngja í Broadway um helgar og að vera að þeytast milli skemmtistaða og félagsmiðstöðva, þá er ég að fullkomna innreið mfna í skallapoppið og kem til með að syngja 2-3 lög í Éurovisionkeppni sjónvarpsins. Ég tel að íslendingar eigi góðan möguleika í "...kemur önnur uppsveifla hver veit" keppninni. Miðað við þau lög sem hafa unnið í þessum keppnum þá er kannski hætta á því að íslensku lögin séu of góð til að vinna. Ég ætla að vona að það verði hresst lag sem kemst í keppnina því það lýsir okkur íslendingum best. Við erum hress þjóð. Keppninni lýkur svo 15. mars og þá ætla ég að setjast niður og reyna að semja efni og koma frá mér plötu fyrir vorið. Að lokum verða kveðjutónleikar "Drýsils" haldnir í mars, og tel ég að sú hljómsveit hafi verið sterkust í þessari "Heavy-metal" uppsveiflu sem stóð yfir að vísu í sorglega stuttan tíma. En ég er mjög stoltur að hafa átt þátt í þeirri uppsveiflu og sé ekki eftir þeim tíma sem fór í "Drýsil". Þetta var hlutur sem ég varð að gera. Og kannski kemur önnur uppsveifla, hver veit. 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.