Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 18
Hefur sótt 51 þing stutt spjall við Þiðrik Baldvinsson ______________________Texti og mynd: Guðmundur Gíslason Ungmennasamband Borgarfjarðar hélt 64. ársþing sitt í lok febrúar s.l. Það vakti athygli manna áþinginu að einn maður hefur setið 51 þing af þessum 64. Er það örugglega fátítt um þingsókn, þessi maður heitir Þiðrik Baldvinsson félagi í Umf. Egill Skallagrímsson. Fyrir utan það að hafa sóttþing UMSB svona velþá hefur hann mætt á alla fundi í sínu félagi fráþví að hann gekk íþað. Eftir að Magndís Alexandersdóttir stjómarmaður í UMFÍhafði sæmthann starfsmerki UMFÍtók undirritaður hann tali. Manstu hvenærþú byrjaðir að hafa afskipti af ungmenna- félagshreyfingunni ? Já ég man það, það var árið 1925 en þá gekk ég í félagið í minni sveit sem er Umf. Egill Skallagrímsson. Varfélagið þáíjölmennt? Það var fjölmennt eftir því sem efni stóðu til. Hver voru þá aðalmálin ? Það var nú bara allt milli himins og jarðar sem rætt var um, en íþróttimar voru ekki komnar í félagið þá. Var þá farið að ræða um að byggja félagsheimili? Já það var lengi rætt um það og voru skiptar skoðanir um hvar það ætti að vera. Svo var það að Bjarni heitinn Ásgeirsson þingmaðurinn okkar útvegaði okkur bretabragga og við rifum hann í sundur fyrir sunnan og Magndís Alexandersdóttir sæmir Þiðrik starfsmerki UMFI fluttum hann hingað og reistum skammt hér frá og það var kveikjan að Lyngbrekku sem er félagsheimili okkar í dag. Hvemig fjármögnuðuð þið þetta ? Við héldum tombólur og smá skemmtanir en félagið var mjög fátækt á peninga. Þá var unnið mikið í sjálfboðavinnu við þetta verkefni. íþróttir hafa svo komið smá saman ádagskrá félagsins? Já þær komu svo seinna en ekki man ég nú hvenær það var. Nú hefur byrjað snemma að sækja þing UMSB ? Já en ekki man ég nú hvenær það var. Það er nú einu sinni svo ef maður lendir inn í einhverju þá er erfitt að komast út úr því, ekki svo að skilja að ég hafi viljað komast út úr þessu. Þetta hefur verið mjög gaman þó ég hafi stundum átt erfitt með að sinna þessu þar sem ég var bóndi og ekki alltaf auðvelt að fara frá. Nú hefur margt breyst fráþvíþú byrjaðir að hafa afskipti af þessum málum. Hvemig finnst þér sú breyting sem orðið hefur á þessum rúmum 50 ámm ? Já það hefur mikið breyst, þingin voru þá í tvo daga og betur sótt. Það var nú ekki mikið rifist en það tókust á menn sem gátu talað og var mjög gaman að hlýða á þá og sjá. Þjóðmálaumræða var mjög ofarlega á baugi þá. Hvernig líst þér á hreyfinguna í dag? Hefur hún nálgast upphafleg markmið ? Mér líst nokkuð vel á hana, þó finnst mér að hún hafi ekki náð þeim markmiðum er sett voru í upphafi heldur fjarlægst. Það er þó ekkert að marka þó mér finnist það, þetta eru nýjir tímar og nýjir menn. Menn á mínum aldri eru búnir að lifa tímana tvenna, en ég er nú 75 ára. Finnstþér að hreyfmgin hafi farið útaf sporinu í bindindismálum ? Já ansi mikið út af gamla sporinu, því ungmenna- félagsskapurinn í byrjun hafði mikil og góð áhrif á bindindissarfssemina, en það er kannski erfiðara að eiga við þetta núna. Því það eru meiri möguleikar og peningar núna í dag og margir sem kunna ekki að fara með sín efni. Eru fundir íþínu félagi vel sóttir ídag? Já þeir eru það, og mætt á réttum tíma en fundir hafa alltaf verið settir á auglýstum tíma ekkert verið að bíða eftir hinum eða þessum. Jæja Þiðrik ég þakka þér kærlega fyrir þetta spjall, en segðu mér ætlarðu að halda áfram að sækja þingUMSB? Já ef þeir kjósa mig til þess og ég hef góða heilsu. 18 Skinfaxi 1. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.