Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 12
Fjármál íþróttahreyfingarinnar Myndir Myndasafn Skinfaxa FJÁRMÁL Á 34 Sambandsþingi UMFÍ sem haldið var að Flúðum í Ámessýslu s.l. haust urðu talsverðar umræður og orðaskipti um fjármál íþróttahreyfingarinnar, um Ieiðir til fjáröflunar og nýtingu þess fjármagns sem hreyfingin fær frá opinberum aðilum til starfsemi sinnar. Enda þótt hinni frjálsu- íþróttahreyfingu á íslandi sé samkvæmt íþróttalögum skipt í tvö landssambönd, íþróttasamband íslands (ÍSÍ.) og Ungmennafélag íslands (UMFÍ) fer ekki hjá því að á þingum þessara sambanda eru fjármálin rædd sem sameiginlegt vandamál þ.e.a.s. beinar fjárveitingar þess opinbera til starfseminnar, svo og aðrar opinberar fjárveitingar til íþróttastarfsins í landinu. Áhrifa þessara systur-hreyfinga gætir líka víða, þannig skipa fulltrúar frá þeim 2/3 hluta íþróttanefndar Ríkisins, sem jafnframt er stjóm íþróttasjóðs, 2/4 hluta stjórnar Félagsheimilasjóðs, og 2/5 hluta stjórnar íþróttakennaraskóla íslands, svo dæmi séu tekin. En fyrst og fremst gætir þó áhrifa íþróttahreyfingarinnar í öflugu starfi hennar sjálfrar, og með öllu óvíst að nokkuð annað almennt félagsstarf í landinu nái til jafnmargra einstaklinga. RÉTTLÁT SKIPTING í nokkuð langan tíma hefur fjárveitingum til ISÍ og UMFÍ verið skipt sem næst í hlutföllunum 75% til ÍSI og 25% til UMFÍ og var þessi skipting grundvölluð á útreikningi ke n n s 1 u s k ý rs 1 n a beggja landssambandanna á sínum tíma. Fyrrverandi hæstvirtur fjármálaráðherra sem nýlega lét af störfum, hefur hinsvegar raskað nokkuð þessum hlutföllum, með að minnsta kosti þremur auka-fjárveitingum á þessu ári, þ.e.a.s. 2 miljónum króna til Handknattleikssambands íslands. 1/2 miljónum króna til Frjálsíþróttasambands íslands og 2 miljónum króna til húsbyggingar ÍSÍ í Laugardalnum í Reykjavík, þannig að misvægið milli landssambandanna frá því að síðustu fjárlög voru afgreidd er nú 4,5 miljónir króna. Undirritaður leyfir sér að vekja athygli á þessu, vegna þess að talsverð vinna var lögð í það á sínum tíma, að sanna það fyrir sjálfum okkur og öðrum, að áður greind hlutfallaskipting á fjárveitingum ríkisins til ÍSÍ og UMFÍ væri réttlát miðað við umfang starfseminnar og þjónustu, og mér vitanlega hafa þau hlutföll ekkert breyst. Enginn má þó skilja orð mín svo, að ég telji fjárveitingar þess opinbera til ÍSI og sérsambanda þess of háar, ég hefi hinsvegar leyft mér að hafa uppi meiningar um það hvernig heildar fjármagninu til ÍSÍ er skipt, og það sama er uppi á teningnum hjá mér varðandi UMFÍ. Ég tel það fyllilega tímabært, að stjóm UMFÍ fari að hugleiða þann möguleika að útdeila út í. hreyfinguna einhverju fjármagni t.d. í formi kennslustyrkja eða útbreiðslustyrks, eins og ÍSÍ gerir. Tel ég að þetta kunni að vera hægt nú meðal annars vegna sívaxandi þénustu UMFÍ af getraunastarfsemi. UMFÍ má ekki fara að falla í þá gröf að safna miljónum í formi rekstrarafgangs, til hugsanlegra húsbyggingaáforma, á meðan starfsemin á ýmsum sviðum úti í hreyfingunni býr við mjög alvarlegan fjárskort. Hafsteinn Þorvaldsson SÉRSAMBÖND ÍSÍ í FJÁRSVELTI Burt séð frá því hvort mönnum þykja fjárveitingar til ÍSÍ háar eða lágar, þá eru ekki allir sáttir við það hvernig fjármagninu er skipt þ.e.a.s. annars vegar til sérsambandanna sem öðru nafni mætti kalla starfssambönd ÍSÍ, og svo til annarra þarfa íþróttasambandsins. Sagt er að úhlutunarreglur þær sem nú eru í gildi hafi á sínum tíma verið samþykktar af öllum viðkomandi aðilum, en vandinn snýst ekki aðallega um úthlutunarreglurnar, heldur það að allt of lítið fé kemur til skiptanna fyrir sérsamböndin, og úr því verður framkvæmdastjórn ÍSÍ að bæta ef viðkomandi sérsambönd flest ef ekki öll eiga ekki að draga verulega saman seglin í starfsemi sinni. Auk beinna fjárveitinga ÍSÍ til sérsambandanna, úthluta þeir fjármagni út í starfsemina, úr svokölluðum Afreksmannasjóði ÍSÍ og útbreiðslustyrkjum, sem ætlað er að bæta eilítið smánarleg framlög ríkisins til kennslustyrkja. Það er Sambandsráð ÍSÍ sem ákveður hverju sinni, hversu há upphæð fer til úthlutunar til sérsambandanna. Af 17,4 miljónum króna heildar-fjárveitingu ríkisins til ÍSÍ á árinu 1985 komu 6,4 miljónir króna til skiptana milli sérsambandanna 18. Skipting þessa fjármagns fer þannig fram að 50% af heildar-fjárveitingunni er skipt jafnt milli sérsambandanna, eða í 18 hluta, 30% er skipt eftir iðkenda fjölda í viðkomandi íþróttagrein og 20% sem þá eru eftir skiptir framkvæmdastjóm ÍSÍ til sambandanna eftir verkefnum, eins og það mun orðað. Það segir sig sjálft að grunn-styrkur til sérsambands innan ÍSIsem nemur c.a. kr. 178.000 á samband, er nánast hlægilegur og þótt stærri og fjölmennari sambönd komist kannski upp í kr. 500.000 heildar-styrk á árinu, eða rúmlega það þau stærri, er það tæpast meira rekstrarfé en tiltölulega lítil 12 Einar Vilhjálmsson íþróttamaður ársins 1985 Skinfaxi 1. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.