Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 13
ungmennafélög úti á landi hafa til starfsemi sinnar, og eða einstakar íþróttadeildir í miðlungs-stórum félögum. Stærri og fjölmennari sérsamböndin innan ÍSÍ velta hins vegar mörgum miljónum á þessu ári (1985) t.d. var veltan hjá FRÍ um 5 miljónir króna s.l. ár, þegar rekstrarstyrkurinn frá ÍSÍ nam tæpum kr. 600.000 eða um 12% af því rekstrarfé sem sambandið varð að afla til starfsemi sinnar, miðað við umfang og þjónustu. Allt það fjármagn sem hér ber á milli verða stjórnendur viðkomandi sérsambanda að útvega með betli eða öðrum hætti, á yfirfullum markaði slíkra fjárbeiðna, þar sem landssambönd eiga kannski erfiðast framdráttar af öllum. Fjársveltið og óöryggið sem það veldur forystumönnum hreyfingarinnar, er líka að sliga menn , og með sama áframhaldi er stutt í það, að enginn maður fáist til slíkra starfa, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir allt íþróttastarf í landinu. Ef einhverjir aðilar halda því fram að þetta hafi alltaf verið svona, er það ekki nema að hluta til rétt, því aðstæður og kröfur breytast. Eins og áður getur þrengist fjáröflunarmarkaðurinn stöðugt, og kröfur íþróttafólksins vaxa, einkum afreks-íþróttamanna til sinna sérsambanda, um aukna aðstoð, og fyrirgreiðslu, sem verður að sinna í takt við tímann. Við verðum að fá það viðurkennt af opinberum aðilum, að affeksíþróttafólk á heimsmælikvarða, er slík landkynning, sem vert er að greiða fyrir á einn eða annan hátt. Sömuleiðis hið mikla uppeldisgildi sem útgáfustarfsemi eftir að aukast verulega á vegum íþróttahreyfingarinnar á næstu árum, einnig ýmiskonar heimildasöfnun, og varðveisla sögulegra verðmæta, í formi ritaðra heimilda, málverka og í munum og rninjum. 011 slík starfsemi mun skapa mikið félagsstarf, og kosta mikla fjármuni, sem aftur munu skila mikilli fræðslu, til eftirkomenda og þeirra sem að því vinna á líðandi stund. Síðast en ekki síst á íþróttahreyfingin eftir að tölvuvæðast og taka virkan þátt ■ útvarps- og sjónvarpsrekstri, ef að líkum lætur. getra unastarfsemi OG "LOTTÓ" Um árabil hefur íþróttahreyfingin hagnast vel á sameignarfélagi sínu Islenskum Getraunum sem stofnað var til með sögulegu samkomulagi milli eignaraðila fyrir nokkrum árum. Sameignarfélagið þ.e.a.s. íslenskar Getraunir hafði líka er talið var, tryggt sér einkaleyfi á rekstri talna-getrauna "LOTTÓS" og vann stjóm getrauna að undirbúningi að slíkri starfrækslu, þegar á Alþingi íslendinga í fyrra vor kemur fram frumvarp um sama efni (að vísu bókstafa-getraunir) og ætlað var Öryrkjabandalagi íslands til fjáröflunar, vegna starfsemi sinnar, eða byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir öryrkja. Að vonum þótti forystumönnum íþróttahreyfingarinnar þetta mál bera nokkuð undarlega að, og sér í lagi að málið skyldi komið til flutnings og umræðu í sölum Alþingis, án þess að slíkt væri rætt við aðila, sem töldu sig hafa rétt til slíkrar starfsemi. Þegar í slíkt óefni var komið, að íþróttahreyfingin var að tapa úr höndum sér þessari áhugaverðu fjáröflunarleið, sem hún hafði lengi undirbúið, og horft til, var úr vöndu að ráða. Þekktur forustumaður í íþróttahreyfingunni, sem sat á Alþingi um þessar mundir, brá þá á það ráð að flytja maraþonræðu um málið undir þinglok, til þess að freista þess að fá málinu frestað, svo tími gæfist til eðlilegrar umfjöllunar hjá íþróttahreyfingunni. Það tókst, en þó með óbeinum hótunum hæstvirts forsætisráðherra um framvindu málsins. Enda þótt undirritaður og sjálfsagt öll íþróttimar hafa í öllu æskulýðsstarfi í landinu. Allt ber því að sama brunni, ef starfssambönd ÍSÍ fá ekki með einhverjum hætti aukið fé til starfsemi sinnar, dregst allt íþróttastarf saman, og höfuðstöðvarnar þ.e.a.s. aðalskrifstofa ÍSÍ verður þá ekki heldur til mikilla stórræða. Þetta vita forystumenn ÍSÍ auðvitað manna best, en því er á þetta minnst hér, að undirritaður telur þetta koma fleirum við en framkvæmdastjórn ÍSÍ. Við verðum sem flest að freista þess að skynja hvar vandinn liggur, og með sameiginlegu átaki að leysa fjárhagsvandamálin. NÝTING FJÁRMAGNSINS Nýting á því fjármagni sem íþróttahreyfingin á íslandi fær til starfsemi sinnar frá opinberum aðilum, er líka umhugsunarefni sem vert er að ræða opnum huga, og af hreinskilni. Allir eru sammála um það, að nr. 1 þarf starfsemin góða þjónustuaðstöðu, húsnæði, tækjakost og annan aðbúnað viðunandi, nr. 2 starfsfólk til þess að annast daglegan rekstur, og þjónustu við hinn almenna félagsmann, svo og aðra samstarfsaðila hreyfingarinnar innan lands og utan. Að mati undirritaðs verður þó að gæta verulegs hófs í byggingamálum, þegar staðreyndin er sú, að fjármagn til þeirra hluta er tekið af almennu rekstrarfé hreyfingarinnar, sem annars gæti farið til þess að efla félagsstarfið með almennri útbreiðslustarfsemi og öðrum stuðningi þar sem rætur hreyfingarinnar liggja, með öðrum orðum, hjá félögunum, í héraðssamböndunum, íþróttabandalögum og síðast en ekki síst hjá sérsamböndum ÍSÍ. Starfsmannahald landssambandanna beggja ÍSÍ og UMFÍ í höfuðstöðvunum þarf líka að íhuga vel, og passa það að fjöldi ráðinna starfsmanna vaxi ekki í öfugu hlutfalli við umfang þjónustunnar. Þá vil ég enn sem fyrr vekja athygli á því, hvort starfsliðið ætti ekki að verja meiri tíma en gert er í dag , til heimsókna og almennra útbreiðslustarfsemi úti á hinum víðfema akri félagsstarfsins. Eftir slíkar heimsóknir ráðinna starfsmanna, og félagsleiðtoga verða viðkomandi aðilar mun hæfari til þess að átta sig á aðstæðum þess fólks sem verið er að vinna með, og vinna fyrir, og starfið verður allt mun líflegra af beggja hálfu. Að mati undirritaðs á ýmiskonar flokka þetta fremur undir skort á upplýsingum um þetta tiltekna má, Frá síðasta sambandsþingi UMFI að Flúðum s.l. haust Skinfaxi 1. tbl. 1986 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.