Skinfaxi - 01.02.1986, Page 5
kringlukasti, og þótti gott, þótt ekki
þætti það mikið nú á dögum. Til
gamans get ég sagt frá því, að þarna
fékk ég viðumefnið "Big red'.
Hefurðu fylgst með störfum
ungm enn afélagshreyfingarinn ar ?
Já, að sjálfsögðu hef ég það, þó ég hafi
reyndar aldrei verið í ungmennafélagi
°g KR sé eina íþróttafélagið, sem ég
hef gengið í. Ég lærði ungur vel að
meta þátt ungmennafélaga í að efla
íþróttir, einnig hlut þeirra í
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Ég trúi
því, að þau hafi orðið ungum mönnum
og konum sú hvatning sem dugði til að
endurheimta sjálfstæðið, og enn í dag
virði ég það mikilsverða starf sem þessi
hreyfing vinnur þjóðinni.
Telurðu ungmennafélög enn eiga
hér félagslegu hlutverki að
gegna?
Alveg vafalaust. Þó að ekki þurfi
lengur að brýna það fyrir ungu fólki, að
Islandi sé allt, má það þó heldur aldrei
gleymast. Starf ungmennafélaganna
hefur breyst, en er ekki síður
nauðsynlegt nú en áður til að hvetja til
útivistar og íþróttaiðkana.
émm ÆiSíííííííLWSÍiíJiS:::?:
1
liilÍl "...hef aldrei komið
á Landsmót'
Hefurðu verið á landsmóti
UMFÍ?
Nei, en það er sannarlega kominn tími
til. Það sem mér finnst ánægjulegast að
sjá innan ungmennafélaga er hinn mikli
fjöldi ungra manna og kvenna sem
leggja rækt við íþróttir, en þó að þar
hafi orðið til afreksmenn, eru það ekki
þeir einir sem em stolt félaganna, heldur
öll heildin.
Okkur í UMFÍ finnst við
stundum afskiptir, þegar kemur
að úthlutun á fjárlögum. Hvað
hefur þú um það að segja?
Ég skil það að mörgu leyti vel. Oft vill
svo fara, að litið er á Iþróttasamband
íslands sem einu heildarsamtökin fyrir
þessi mál hér á landi. Að vísu hafa oft
verið í fjárveitingamefnd skilningsríkir
menn, sem hafa úthlutað viðbót til
UMFÍ um leið og ÍSÍ. Hins vegar er
upphaflega fjárveiting til ÍSÍ alltaf hærri
en til ungmennafélaganna. Ég man að
Vilhjálmur Hjálmarsson hafði áhyggjur
af þessu, þegar hann var menntamála-
ráðherra.Trúlega miðast fjárveiting til
ÍSÍ oft við kostnað þeirra af
keppnisferðum til annarra landa, og eins
vilja margir halda því fram, að þeirra
rekstur sé kostnaðarsamari. Ekki þori
ég þó að dæma um það.
Nú hefur enn dregið sundur með
þessum tveim samtökum, hlutur
UMFÍ hefur hækkað um 25 % en
hlutur ÍSÍ aftur á móti um 32 %.
Ég sé nú ekki samræmið í því. En
óneitanlega var fyrrverandi
fjármálaráðherra afar hliðhollur
starfsemi ÍSÍ, og sjálfsagt hefur hann
gert betur við þá en áður hefur tíðkast.
Finnst þér fjárveitingar umfram
fjárlög eiga rétt á sér?
Já, en í algjörum undantekningum og
aðeins ef eitthvað það ber upp á, sem
breytir öllum grundvelli fjárlaga. Vera
kann að fyrrverandi fjármálaráðherra
hafi þar gengið lengra en góðu hófi
gegndi.
mm ...verið hógværarí en ÍSÍ i
Samkvæmt kennsluskýrslum
1984 eru 49 af hundraði allra
íslendinga, sem íþróttir stunda,
starfandi innan ungmennafélaga.
Ekki virðast fjárveit- ingar í
samræmi við þá tölu?
Trúað gæti ég að UMFÍ væri eitthvað
hógværara í kröfum en ÍSÍ. Þó segi ég
það ekki ÍSÍ til lasts, oft er réttlætanlegt
að sækja fast gott málefni. Því er oft
haldið fram að ungmennafélögin séu
meiri grasrótarhreyfing, en ÍSÍ hafi svo
mikla fjárþörf, sem raun er á, vegna
kostnaðarsamra utanlandsferða til að
gera sig gildandi á alþjóðamótum. En
ég hef oft sagt, og segi enn, að það
besta sem ríkisvaldið getur gert til að
efla heilbrigt mannlíf og stemma stigu
við áfengis- og vímuefnaneyslu meðal
ungs fólks, sé að styrkja fjárhagslega
sem mest það má allar
íþróttahreyfingar. Og ekki má gleyma
öllum þeim íþróttamannvirkjum, sem
komið hefur verið upp hér á landi á
síðustu áratugum.
Eru líkur á að frumvarpið um
Lotto verði bráðlega afgreitt frá
Alþingi?
Já, ég sé ekki ástæðu til að ætla annað.
Ég hef enga andstöðu heyrt við það,
aftur á móti heyri ég menn lýsa ánægju
með það samkomulag.
Telur þú rétt að leggja svo mikla
áherslu á keppnisfþróttir sem
raunin er?
Ég tel rétt að aðal áherslan sé á
almenningsíþróttum, en raunar eru
engir líklegri til að hvetja fjöldann til að
iðka íþróttir en afreksmennimir. Þeirra
hlutverk er því stórt.
Hvaða ósk átt þú besta til handa
ungmennafélögum ?
Þar sem ég tel þessa starfsemi hafa
verið ótrúlega mikilvæga og trúlega
aldrei metna að verðleikum, vil ég óska
þess að hún megi eflast og ná til sem
allra flestra. Sjálfur vildi ég óska mér
að eiga þar þátt í með því liði sem ég er
fær um að leggja.
Um leið og ég þakka þér,
forsætisráðherra, fyrir samtalið, óska ég
þérallshins besta.
Guðmundur Gfslason
Skinfaxi 1. tbl. 1986
5