Skinfaxi - 01.02.1986, Page 7
Það er í uppsveiflu
spjallað við Sigrúnu Lárusdóttur
_______________ Texti og mynd: Guðmundur Gíslason
Stundum kemurþað fyrir að félög sofna um stundar sakir eða jafnvel
deyja alveg, en það er sem betur fer ekki oft. Eittþeirra félaga er hafa
blundað aðeins undanfarin ár er Umf. Haukur í Leirár og Melasveit.
Til að forvitnast aðeins um stöðu félagsins 1 dag ræddi undirritaður
við ritara þess Sigrúnu Lárusdótttur áþingi UMSB fyrir skömmu.
Hvað erfélagið orðið gamalt?
Það varð 75 ára um daginn.
En hefur verið í einhverri lægð að
undanfömu 7
Já, en er í mikilli uppsveiflu núna
Hver hafa verið helstu verkefni
þess?
Undanfarin ár hafa það aðallega
verið þorrablót, góugleði og
spilakvöld. íþróttir hafa verið
mjög takmarkað, þá einkum á
vegum skólans í sveitinni en ekki
beint á vegum félagsins. Við erum
nýbúin að skipa ýmsar
íþróttanefndir og ætlum að reyna
Litli Bergþór
Ungmennafélag Biskupstungna gefur út
blað er heitir Litli Bergþór, og koma út
3-4 blöð á ári. Blað þetta er hið
skemmtilegasta bæði hvað útlit og efni
varðar. í því eru sögur, viðtöl, vísur og
margt fleira. Þá er blaðið sem er
offsetfjölritað mjög skemmtilega og vel
upp sett, en það er alveg unnið af ritnefnd
nema fjölföldunin. Til gamans birtum við
héma tvær vísur úr 3. tbl. 6. árg.
Leirulækjar Fúsi var eitt sinn ungur látinn
gæta bams og söng þá yfir því:
Varastu þegar vits færð gætt
til vonds ei legðu hendur.
Það er gervallt þjófaætt
það sem að þér stendur.
Faðir þinn var furðu hvinn,
frændur margir bófar.
Ömmur báðar og afi þinn,
allt voru þetta þjófar.
að fá leiðbeinendur frá UMSB.
Hægt er að stunda flestar íþróttir
held ég nema þá sund, og er
borðtennis mjög vinsæl. Það er
þokkalegur íþróttavöllur við
skólann.
Eru margirí félaginu ídag?
Ég veit það ekki alveg, en það er
verið að endurvinna
félagaskránna, þetta er búið að
vera það lengi í lægð. Reyndar
mættu nú ekki nema 39 á
endurreisnarfundinn um daginn.
Þið ætlið að vera með
félagsmálanámskeið á næstunni.
Já við ætlum að reyna að koma
einu á núna í mars og höfum rætt
við UMFÍ um að fá leiðbeinanda
frá þeim. Og er það einn þátturinn
í því að koma félaginu af stað
aftur.
Er þá mikill áhugi núna að vekja
félagið upp af svefninum ?
Já það virðist vera, en maður veit
ekki hvað verður þegar á hólminn
er komið. Þetta er í fyrsta skipti er
félagið dettur svona niður, en það
gerðist alveg óvart.
Sigrún ég þakkar þér kærlega
fyrir spjallið og vona að ykkur
gangi vel að lífga félagið við
aftur.
Eins og þeir er lesa blaðið hafa tekið eftir, hefur verið í
tveimur síðustu tbl. smá ljósmyndagetraun. Þar höfum við
birt tvær ljósmyndir í hvort sinn af einhverjum þekktum
mönnum í hreyfingunni, og hafa þær myndir gjaman verið
teknar fyrir mörgum árum eða við einhverjar óvenjulegar
aðstæður. Verðlaunum var heitið fyrir rétt svör er bærust, en
eitthvað virðast lesendur vera ómannglöggir eða pennalatir
nema hvort tveggja sé, því lítið af svörum hefur borist.
Þó barst rétt lausn á síðustu getraun frá Helenu. S.
Þráinsdóttur, Oddakoti,^ Austur-Landeyjum, og munum við
senda henni sögu UMFÍ "Ræktun lýðs og lands" um leið
og við þökkum henni fyrir þátttökuna. Rétt lausn á síðustu
getraun var A. Diðrik Haraldsson stjómarmaður í UMFÍ og
B. Hörður S. Óskarsson starfsmaður UMFÍ.
Þar sem lítil sem engin þátttaka hefur verið í þessum leik
okkar munum við hvíla hann að sinni, nema við fáum
áskorun um annað.
Skinfaxi 1. tbl. 1986
7