Skinfaxi - 01.02.1986, Side 8
"Með heila eins og
fótbolti í laginu"
Eiríkur Haukssson söngvari segir frá íþróttaferli sínum
Texti: Krístján Krístjánsson Myndir: Guðmundur Gíslason
Eiríkur Hauksson söngvarí ætti að vera flestum íslendingum kunnur um
þessar mundir. Hann sló eftirminnilega ígegn með lögunum "Gaggó-vest"
og "GulT' afBorgarbrag Gunnars Þórðarsonar sem kom út stuttu fyrir jól.
Fjölmörg viðtöl hafa birst við Eirík að undanfömu. Skinfaxi tók viðtal við
hann fyrir skömmu og kom íljós að hann varog ermikill
íþróttaáhugamaður. Þegar við heimsóttum hann á heimili hans í Teigunum
varhann eins og flestir íslendingar í skýjunum út af sigri íslenska
handknattleikslandsliðsins á Rúmenum íHM. Við báðum Eirík að rekja fyrir
okkur tónlistar- og íþróttaferil sinn.
-Ég byrjaði mjög snemma að spila. 16 ára
stofnaði ég ásamt nokkrum félögum
mínum úr M.S. hljómsveit sem spilaði
m.a. nokkrum sinnum í gamla Þörscaffe
og út frá henni var stofnuð hljömsveitin
"Octopus". Þaðan lá leið mín til
Neskaupstaðar þar sem ég spilaði með
hljómsveitinni "Amon Ra" eitt sumar.
Fljótlega eftir að ég kom í bæinn var
hljómsveitin "Start" stofnuð og entist ég í
henni í næstum 3 ár. Síðan var stofnuð
"Deild 1" og loks "Drýsill". Núna
syng ég með Gunnari Þórðarsyni á
Broadway auk þess sem ég þeytist á milli
skemmtistaða og félagsmiðstöðva einn með
segulband og syng nokkur lög.
-Ég ólst upp upp í vogunum og gekk í
Vogaskóla strax 6 ára að aldri og var þar
alveg fram að stúdentsprófi, því að
Menntaskólinn við Sund byrjaði upp í
Vogarskóla um það leiti sem ég byrjaði í
menntaskóla. Ég tók ekki mikinn þátt í
félagslífi skólans en það var oft kallað í
mig á árshátíðum og var ég oft beðinn um
að vera með sprell þar sem ég og gerði. En
að öðru leiti var ég ekki mikið með.
Tónlistin og íþróttirnar áttu hug minn allan.
"Með heila eins og
fótbolti í laginu"
-Ég er búinn að vera með heila eins og
fótbolti í laginu síðan ég var 7 ára. Þá
spilaði ég alltaf með skólaliðinu og þegar
Þróttur flutti upp í Sævarssund þar sem ég
átti heima, þá var ég plataður á æfingu með
þeim og spilaði stanslaust með þeim frá 5.
flokki upp í 2. flokk.
Unnuð þið einhverja titla áþessum tíma?
-Já já við unnum milljón titla. Við vorum
t.d. íslandsmeistarar í öllum flokkum og
það spiluðu með okkur menn sem eru
orðnir mjög þekktir núna, eins og t.d. Páll
Ólafsson landsliðsmaður í fót- og
handbolta, Þorvaldur Þorvaldsson sem
spilað hefur með Val, Ársæll Kristjánsson,
Sverrir Einarsson fyrirliði Framara og
nokkrir fleiri.
Var aldrei mikill bógur
-Auk þess sem ég spilaði fótbolta þá var ég
í handbolta á veturna en var aldrei mikill
bógur þar. Ég spilaði oftast í hornunum og
skoraði kannski 3-4 mörk í leik. En þetta
var nú aðallega í gamni gert. Og svo þegar
ég var 19-20 ára fór ég að æfa körfubolta
en þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá mér.
Ég tognaði illilega tvisvar og endaði með að
slíta liðbönd við öklana. Eftir þetta ætlaði
"...með heila eins og fótbolti..."
ég að byrja að æfa með mfl. Þróttar eftir
nokkurt hlé, en tognaði strax á fyrstu
æfingu þannig að ég sá fram á eilíf meiðsl
og vesen, þannig að ég ákvað að hætta. Á
þessum tíma var tónlistin farin að taka æ
meiri tíma auk þess sem að það var mjög
dýrt að æfa meiddur. Á þessum tíma
útveguðu íþróttafélögin ekki íþróttateip
fyrir mannskapinn og það hefði verið mjög
dýrt fyrir mig að æfa á þessum tíma.
íþróttirnar í sjónvarpinu
friðhelgur tími
-í dag þá fylgist ég mjög vel með öllu sem
er að ske í íþróttum og er t.d. íþróttatíminn
í sjónvarpinu friðhelgur tími hjá mér. Þá
svara ég ekki í síma og sit eins og negldur
við kassann. Fyrir utan fótboltann þá hef
ég mikinn áhuga fyrir handbolta,
körfubolta og ýmis konar "stórkarla"
íþróttum eins og lyftingum. Þar held ég
mikið uppá Torfa Ólafsson og Hjalta
"Úrsus" sem reyndar er gamall poppari.
Hann spilaði á hljómborð og
hljómborðsleikarara eru nú yfirleitt bettir
menn, en það er nú ekki hægt að segja um
Hjalta. Ég fell mest fyrir ákveðnum týpum
í íþróttum. Á Olympíuleikunum í Munchen
var einn hlaupari sem hljóp alltaf með
derhúfu á hausnum. Hann var alltaf lang
síðastur þangað til á endasprettinum, þá
hljóp hann framúr öllum keppendum og
kom fyrstur í mark. A síðustu
Olympíuleikum fannst mér Thompson
skemmtilegastur en María Decker var sú
allra leiðinlegasta týpa sem ég hef nokkurn
tíman séð. Þegar hún datt í hlaupinu
fræga, Guð minn góður, ég hef aldrei séð
aðra eins tilgerð. í körfuboltanum finnst
mér Pálmar Sigurðsson í Haukum
sprækastur. í handboltanum mundi ég
nefna Kristján Arason sem minn uppáhalds
leikmann. Það er maður sem má yfirleitt
treysta á. í fótboltanum er ég hrifinn af
Janusi Guðlaugssyni og Pétri Péturssyni,
ennþá. Mér finnst alltaf gaman að sjá svona
síðhærða menn á leikvöllum, eins og
kannski skiljanlegt er. Það setur
skemmtilegan lit á liðið.
Gallharður skagamaður
-Ertu ennþá Þróttari?
-Nei. Ég hef nú ekki sterkar taugar til míns
gamla félags. Þeir hafa verið frekar slappir
undanfárin ár. Ég hef verið gallharður
Skagamaður síðustu ár. Annars er ég ekki
hrifinn af því leikskipulagi sem hefur verið
í fótboltanum undanfarin ár.
-Aðsókn á deildarleiki hefur farið dalandi á
undanförnum árum, að vísu færðist smá líf
í deildina síðasta sumar en eins og í
handboltanum, þá hafa deildarleikirnir
dalað meðan landsliðið er að vinna á. Til
þess að reyna að auka aðsókn á deildarleiki
mættu liðin fara að spila meiri sóknarleik
8
Skinfaxi 1. tbl. 1986