Skinfaxi - 01.02.1986, Side 11
Brids
-Hað eru menn af holdi og blóði
í vörninni - og slík fyrirbæri
gera mistök. Það væru alvarleg
mistök að gera ekki ráð fyrir því.
Mundu það þegar þú tekur
ákvörðun um hvemig best sé að
spila þessa fjóra spaða:
Vestur gefur.
Norður
s G98
h 432
t Á3
1 ÁG1095
Suður
s ÁKD1032
h 765
t D5
1D4
Vestur Norður Austur Suður
Pass pass Pass 1 spaði
2 tíglar 3 iauf 3 tíglar 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Vestur hefur leikinn með því að
taka þrjá efstu í hjarta, en skiptir
yfir í lítinn tígul. Hvernig viltu
spila?
Nú, spilið stendur og fellur með
laufsvíningunni, er það ekki?
Drepið á tígulás, trompin tekin og
laufdrottningunni gluðað út í von
um það besta? Nei, í von um
kraftaverk. Vestur á ekki
laufkónginn, þá hefði hann vakið
1 fyrstu hendi með a.m.k. fimm
tígla og 12 punkta. Við munum
að hann hefur þegar synt þriá
efstu í hjarta.
Sigursæll spilari byggir ekki
spilamennsku sína á
kraftaverkum. Hann hefur meiri
trú á gæsku náungans - óviljandi.
Hann spilar því spilið þannig:
Drepur á tígulás, tekur laufás og
spilar laufi á drottninguna.
ANDSTÆÐINGARNIR ERU
MENNSKIR
- OG GERA ÞVÍ MISTÖK
Guðmundur Páll Amarson
Norður
s G98
h 432
t Á3
1 ÁG1095
Vestur
a 54
h ÁKD8
t109876
132
Austur
s 76
h G109
tKG42
1K876
Suður
s ÁKD1032
h 765
tD5
1D4
Hvað á austur að gera? Ef
sagnhafi á einspil í laufi má hann
ekki fara upp með kónginn, því
þá getur sagnhafi trompað út
drottningu makkers og fríað tvö
lauf.
Hann er í vanda, en kannski ætti
hann að ramba á réttu lausnina ef
hann treystir talningu vesturs.
En, eins og sumir vita betur en
aðrir, menn í vanda gera sig seka
um mistök. Stundum a.m.k. Og
það er betra að spila upp á það en
vonlausa svíningu.
—0—
Það er grundvallarþáttur
bridsspilsins að upplýsingar eru
takmarkaðar. Það er sama hvort
það er í sögnum, útspili eða
vöm, eitt mikilvægasta atriðið er
alltaf að afla upplýsinga. Því án
þeirra vaða menn í villu og
svima. Öll viljum við vitaskuld
að andstæðingamir vaði villu og
svima og þess vegna er það góð
pólitík að reyna eftir megni að
fela vísbendingar og þvinga
mótherjana til að taka afdrifaríka
ákvörðun sem fyrst, áður en þeir
hafa aflað sér þeirra gagna sem
nauðsynleg eru.
Norður
s G87
h KD5
tÁ10
1 96432
Suður
s ÁK3
h Á62
1743
1Á875
Suður spilar þrjú grönd og fær út
hjartafjarkann, fjórða hæst.
Hvernig er best að spila þetta
spil? Ef þú ert einn af þeim sem
reiknar alltaf með því að
andstæðingarnir spili hundrað
prósent vöm, þá er þetta einfalt
og fljótspilað spil. Laufin verða
ósköp einfaldlega að liggja 2-2.
Ef þau eru 3-1 hefur vömin tíma
til að brjóta sér a.m.k. þrjá slagi á
tígul til viðbótar við laufaslagina
tvo. En hver er kominn til með
að segja að vömin skipti endilega
yfir í tígul? Ýmislegt getur komið
til greina frá bæjardyrum austurs
og vesturs, ef sagnhafi kjaftar
ekki af sér. Best er að drepa á
hjartaásinn í borðinu og fylgja
með sexunni heima til að fela
þristinn, þannig að austur gæti
haldið að útspilið væri frá
fimmlit. Spila síðan litlu laufi frá
báðum höndum í öðrum slag.
Það er gert til að gefa vöminni
ekki færi á að kalla í tígli ef laufin
eru 3-1. Ef austur lendir inni á
laufahónór kemur vel til greina
frá honum séð að halda áfram
með hjartað. Spilamennska af
þessu tagi verður rútína hjá
reyndum spilurum, og gefur þeim
fjölmarga samninga sem þeir eiga
ekkert tilkall til. Og það er
einfaldlega vegna þess að þeir
taka tillit til þess að vömin er ekki
óskeikul.
Skinfaxi 1. tbl. 1986
11