Skinfaxi - 01.02.1986, Qupperneq 14
Séð yfir áhorfendapalla ásíðasta Landsmóti UMFÍíKeflavík/Njarðvík 1984
LOKAORÐ
heldur en alþingismenn séu almennt
þeirrar skoðunar, að íþróttahreyfingin
fái nú þegar nægt fjármagn til sinnar
starfsemi. Þá er hér líka um að kenna,
dæmalausu andvaraleysi
íþróttaforustunnar, og gangleysi í því
að koma þessari starfsemi á, þrátt fyrir
mikla umræðu þar um og loforð í
gegnum árin.
Af þessum ástæðum, eða einhverjum
öðrum, er nú svo komið málum, að
íþróttahreyfingin hefur orðið af að
minnsta kosti 40% hugsanlegs
ágóðahluts af þessari umræddu
fjáröflunarleið, vegna þess að
forystuliði hreyfingarinnar hefur verið
uppálagt af stjómvöldum samstarf við
Öiyrkjabandalagið, eða að öðrum kosti
að missa verkefnið alfarið úr höndum
sér.
Það er svo aftur mál út af fyrir sig, að
forustumenn ÍSÍ og UMFÍ sem eiga 2/3
hluta fulltrúa í íþróttanefnd Ríkisins og
stjórn íþróttasjóðs, skuli alfarið hafa
hafnað þátttökuaðild íþróttanefndar í
hinu nýja félagi, eins og hefur þó verið
í fslenskum Getraunum.
Að mati undirritaðs, er þar um að ræða
fáheyrt vantraust á nefnd sem skipuð er
meirihluta af fulltrúum nefndra
landshreyfinga, og sem jafnan hefur
úthlutað ágóðahlut nefndarinnar af
getraunastarfseminni beint til hinnar
frjálsu íþróttastarfsemi í landinu.
Sívaxandi fjöldi íslendinga telur, að
opinberum fjárveitingum til
íþróttastarfsemi í landinu sé vel varið.
Það er hinsvegar skylda
íþróttaforustunnar að sanna að svo sé á
hverjum tíma, hún verður þá líka að
vera við því búin að hinn almenni
félagi hafi um það skoðanir, hvernig
þessum fjármunum skuli varið, það
væri raunar ekki óeðlilegt að
íþróttaforustan hefði forgöngu um að
leita eftir slíku meira en gert er í dag.
Aðalvandinn er hinns vegar sá eins og
hér hefur verið að vikið, að of litlir
peningar eru til skiptana til þeirra
fjölmörgu verkefna sem að er unnið á
vegum íþróttahreyfingarinnar í dag.
Sameiginlega verða landssamböndin,
íþróttasamband fslands og
Ungmennafélag íslands að vinna að því
að fá úr því bætt, það er hagur
íþróttahreyfingarinnar í heild.
Hafsteinn Þorvaldsson
RÍS 2000 reyklaustísland árið 2000
Fyrir nokkru voru stofnuð í Reykjavík
RÍS 2000, sem eru samtök sem berjast
fyrir því að ísland verði reyklaust
árið 2000. Samtökin eru stofnuð að
fyrirmynd útlendra systursamtaka og
heita í Bandaríkjunum SFS 2000
(Smoke Free Society Year 2000).
Samtökin voru stofnuð hér á íslandi að
frumkvæði Krabbameinsfélags íslands,
en norræn krabbameinsfélög samþykktu
á fundi sínum í Finnlandi að stefna að
því að gera Norðurlöndin reyklaus árið
2000.
Forsaga málsins er sú vitneskja að
sjúkdómar af völdum
tóbaksnaumarinnar (stór hluti hjarta- og
æðasjúkdóma, lungnasjúkdóma og
krabbamein í lungum og öðrum
öndunarfærum) eru taldir mesta
heilbrigðisvandamál á Vesturlöndum og
vaxandi vandamál í Þriðja heiminum.
Er nú talið að í Bandaríkjum
Norður-Ameríku deyi um 300-350
þúsundir Bandaríkjamanna fyrir aldur
fram af völdum ofangreindra sjúkdóma.
Landlæknir íslands hefur áætlað að á
íslandi deyi um 300 manns fyir aldur
fram af völdum tóbaks á ári hverju.
En tóbakssjúkdómar eru ekki eingöngu
bundnir við þá sem viljandi reykja. Á
síðustu árum hafa komið fram
fjölmargar rannsóknir er sýna að börn,
makar og vinnufélagar reykingafólks
eru í mun meiri hættu að fá t.d.
öndunarfærasjúkdóma en börn og
makar þeirra er ekki reykja. Ennfremur
er nú ljóst að þeir sem vistast
langvarandi í tóbaksreyk af völdum
annarra eru í meiri hættu að fá
lungnakrabbamein. Reykingafólkið
getur því með atferli sínu valdið
sjúkdómum og dauða annarra.
Til þess að berjast gegn tóbaksvánni
hafa nú ýmis fjöldasamtök á íslandi
bundist samtökum og nefna þau RlS
2000 - Reyklaust ísland áriö
2000.
Samtökin eru þessi:
Félag héskólamcnntaDra
hjdkrunarfræðinga
Félag íslenskra sjékraþjálfara
Félag lasknanema
Félag þroskaþjálfa
Fóstrufélag lslands
HeilbrigBisfulltrúafélag íslands
Hjartavernd
Hjúkrunarfélag íslands
íslcnska bindindisfélagið
íþróttasamband íslands
Krabbamcinsfélag íslands
Ungmcnnafélag Islands
Kvenfélagasamband íslands
Litlu bifhárin
Læknafélag fslands
Ný rödd
Rauði Kross íslands
SÍBS
Sjúkraliðafélag fslands
Tannlæknafélag íslands
Öryrkjabandalag íslands
14
Skinfaxi 1. tbl. 1986