Skinfaxi - 01.02.1986, Page 30
Staldrað við í Laugaskóla
Texti og myndir. Guðmundur Gíslason
Eins og í mörgum héraðsskólum
er mikið félagslíf f Laugaskóla
og hefur alltaf verið. Fjöldi
nemenda og aðstaða hefur breyst
mikið á síðustu árum. Nú f dag
byrjar skólastigið í skólanum
með 9. bekk en auk hans eru tvö
ár í framhaldsdeildum þ.e. hálfur
áfangi að stúdentsprófi.
Nemendur í dag eru um 120
talsins og má segja að þeir komi
vfðast hvar af landinu, og eru
t.d. margir nemendur af
suðurnesjum f skólanum núna.
Þá hefur lengi verið mikið um
austfirðinga í skólanum ásamt
svo nemendum úr nærliggjandi
sveitum. Fyrir stuttu er ritstjóri
Skinfaxa var þar á ferð kynnti
hann sér aðeins aðstöðu nemenda
fyrir félagslff. Og er óhætt að
segja að hún sé nokkuð góð þó
fþróttaaðstaðan skeri sig mjög
úr. En fyrir nokkrum árum var
tekið f notkun nýtt og glæsilegt
fþróttahús við skólann, og hefur
það gjörbreytt öllu fyrir inni-
fþróttir. Þvf áður var notast við
lftið hús sem fyrir löngu var
búið að sprengja alla starfsemi
utan af sér.
Fyrir utan íþróttaiðkun eru
fjölmargir tómstundaklúbbar og
hafa sumir alveg sér pláss eins
og t.d. ljósmynda og módel-
klúbbarnir, en þeir hafa sér
herbergi undir stúkunni í
fþróttahúsinu. Þá er rekinn
útvarpsstöð af nemendum, og
hefur hún starfað f nokkur ár.
Hér hefur verið drepið á nokkra
þætti í félagslífi skólans sem er
mjög fjölbreytt og öflugt.
Til að fræðast um þetta nánar þá
ræddi ég við tvo nemendur og
eru viðtölin við þá hér á sfðunni
ásamt myndum.
"Útvarp Laugaskóli gott kvöld..."
Eins og áður er getið þá errekinn
útvarpsstöð í skólanum af
nemendum, ég leit aðeins við þar
ámeðan verið varað senda út 10
vinsælustu lögin þá vikuna valin
af nemendum. En valin eru
alltaf á þriðjudögum 10
vinsælustu lögin. Það má
til gamans geta þess að lagið
"Hjálpum þeim" með
Hjálparsveitinni komst rétt inn á
listann og svo til um leið út af
honum aftur. Ástæðan fyrirþví er
að um leið og lagið varð vinsælt
og komst í efsta sæti á Rás-2 kom
jólafrí nemenda, og er þeirkomu
aftur í skólann var lagið að missa
flugið á Rás-2 og komstþví aldrei
ofarlega á Laugalistann. Þá hafa
nemendur stundum sent út
gamanefni þó það sé ekki mikið.
A myndinni hér til hliðar sjáum
við þegar verið er að spila
vinsælustu lögin, en þessi þáttur
hefur verið lengi fastur á dagskrá
útvarpsins og er mikið hlustað á
hann.
"Þáerþað 6. vinsælasta lagiðþessa vikuna". Verið að leika Laugalistann.
Skinfaxi 1. tbl. 1986
30