Skinfaxi - 01.02.1986, Síða 31
Er eitilharður
stuðningsmaður Einherja
Formaður nemendafélags
Laugaskóla er Magnús Ólafur
Kristjánsson og er hann frá
Vopnafirði. Ég náði að spjalla
stuttlega við hann í miðri
útvarpssendingu, þar sem hann
var ásamt félaga sínum að senda
út 10 vinsælustu lögin á Laugum
þá vikuna.
Hvað kom til að þú ferð hingað í
skóla en ekki í Eiða eða
Menntaskólann áEgilsstöðum ?
Já ég veit það nú ekki. Ég hafði
heyrt mjög góðar sögur um
þennan skóla, menn báru honum
gott orð er höfðu verið hér áður.
Þá hafði ég meiri áhuga á að fara í
heimavistarskóla en t.d.
Menntaskólann á Egilsstöðum.
Svo hefur straumurinn legið
hingað frá Vopnafirði í skóla
undan farin ár, ég held að t.d.
enginn hafi farið í Eiða síðustu
tvö árin að heiman.
Er það íþróttaaðstaðan sem gerir
þetta?
Já sennilega eitthvað.
Þú ertííþróttum erþað ekki?
Ja, ég er nú voða lítið í íþróttum
sjálfur, en aðaláhugamálið er að
horfa á fótbolta.
Þú ert þá stuðningsmaður
Einherja?
Alveg eitilharður.
Hvað á að gera ernámi lýkurhér?
Ég ætla halda áfram og fara þá
sennilega í Verkmenntaskólann á
Akureyri, en ég er á
viðskiptabraut hér og á síðasta
ári.
Hvernig er félagslífið í
skólanum ?
Það er mjög gott og eru íþróttir
þar stærstar, en þó eru líka margir
klúbbar eins og ljósmynda-
módel- leiklistar- og
útgáfuklúbbur og margir aðrir.
Mér finns að það sé meira líf í
fólki núna í vetur heldur en í
fyrra. Svo þegar árshátíðin er
haldin kemur út blaðið Jámsíðan
en það er fastur liður í
félagsstarfinu.
Jæja Magnús ég þakka þér fyrir
spjallið og vona að ég hafi ekki
truflað mikið útsendingu ykkar á
vinsælustu lögunum.
Ætla að verða íþróttakennari
Lil að mismuna ekki kynjunum
tókst mér að króa eina
blómarósina í Laugaskóla afþar
sem hún hafði það huggulegt og
hlustaði á Magnús kynna
vmsælustu lögin þessa vikuna og
spjalla stuttlega við hana. Hún
heitir Guðbjörg Hulda
Stefánsdóttir og er úr
Leykjahverfi.
A hvaða brautískólanum ertu?
Ég er á íþróttabraut, og er þetta
þriðja árið mitt í skólanum en ég
byrjaði í 9. bekk.
Á hvað stefnurðu í framtíðnni?
Ég stefni á íþróttakennaraskólann,
en ég á tvö ár eftir í stúdent þegar
ég er búinn hér í vor.
Hvaða íþróttir leggurðu einkum
stund á?
Það er aðallega fótbolti og blak.
Líkar þér vel héma ?
Já mjög vel, það hefur verið
góður andi öll þessi ár sem ég hef
verið héma. Þó myndi ég segja að
besta félagslífið hafi verið hér er
ég var í 9. bekk. Það er líka ágætt
í dag, það eru haldnar alltaf aðra
hvora helgi kvöldvökur og svo
eru bekkjamót í íþróttum eins og
t.d. í kvöld. Svo eru verðlaun í
mótunum afhent á árshátíðinni.
Þá fáum við ýmsa skóla í
heimsókn og keppum í íþróttum
við þá, einnig förum við og
heimsækjum aðra skóla. í vetur
fórum við t.d. í Eiða og kepptum
við krakkana þar.
Hvenær er árshátíðin ?
Hún verður 15. mars og þá erum
við líka með skemmtidagskrá í
íþróttahúsinu þar sem við
byrjum, og taka bæði nemendur
og kennarar þátt í henni. Svo um
kvöldið er farið í samkomusalinn
og þá er sýnt leikrit og annað
skemmtiefni, og dansað á eftir.
Þú hefur þá snemma ákveðið að
verða íþróttakennari ?
Já, það kom eiginlega aldrei neitt
annað til greina.
Ég þakka þér kærlega fyrir
spjallið og vona að þú komist á
íþróttakennaraskólann eftir tvö ár.
Skinfaxi 1. tbl. 1986
31