Skinfaxi - 01.02.1986, Page 33
Hvenær fóru ljósmyndir að
birtast í rítinu?
Þær byrjuðu strax að koma á
þríðja árinu um leið og farið var
að prenta. En við höfum alltaf
látið prenta ritið hjá Prentverki
Odds Björnssonar á Akureyri.
Við höfum verið mjög heppnir
með ljósmyndir því Björn
Bergmann sem er nýlátinn tók
mikið af myndum og var alltaf
mjög mikill stuðningsmaður við
rítið bæði með myndir, efni og
einnig prófarkalestur. Þá hefur
Unnar Agnarsson sem lengi hefur
starfað í ritnefnd verið ötull við að
taka myndir í ritið, bæði á
forsíður og inn í það.
Þið hafið þá verið mjög
stórhuga í upphafi?
Þetta gekk vonum framar, því
maður bjóst ekki við að því yrði
eins vel tekið og raun varð á. En
við tókum strax upp í ritinu stuttar
fréttir úr héraðinu ásamt ýmsum
föstum þáttum eins og um veðríð
á liðnu ári. Og nú á seinni árum,
Já í nokkuð mörg ár höfum við
Uirt stutta grein um alla þá er látist
hafa í héraðinu á árinu sem
Prestamir hafa oftast skrifað fyrir
°kkur, þá birtum við líka myndir
af viðkomandi. Og nú í dag eru
líklega komin um 400 æviágrip í
ritinu frá því við byrjuðum með
þau.
Hefur rítið alltaf verið í
Þessu broti?
Já, það hefur alltaf verið í þessu
broti nema tveir fyrstu árgangarnir
er voru fjölritaðir. En við höfum
látið endurprenta þá ásamt
fleirum, þannig að allir eru nú í
sama brotinu.
Hvert er upplag ritsins
nána?
Það hefur stöðugt verið að aukast
?§ er nú komið í 1500 eintök.
Við höfum lengi haft allmarga
fasta áskrifendur að ritinu er fá
það sent um leið og það kemur út.
^yað er rítið margar síður?
^ðasti árgangur er var nú
Skinfaxi 1. tbl. 1986
sérstakur afmælisárgangur var sá
stærsti, hann var 327 bls. fyrir
utan auglýsingar. En við höfum
allltaf haft svolítið af þeim, en
aldrei dreift þeim inn í efnið. Þetta
eru orðnar nokkuð margar síður
frá upphafi eða 4844 á 25 árum.
Og það hefur komið efni eftir um
300 höfunda, og það sem kannski
er einna ánægjulegast við þetta, er
að þama hafa komið fram margir
sem kannski myndu annars aldrei
hafa skrifað, og þar með hefur
ýmiss fróðleikur verið varðveittur
frá gleymsku.
Nú hefur rítið frá upphafi
veríð gefið út af USAH.
Já! það var nú eiginlega mín
hugmynd að ungmennasambandið
gæfi það út, því ég taldi að þá
myndi það frekar lifa. Ég var ritari
sambandsins þegar við byrjuðum
á þessari útgáfu, en
samstarfsmaður minn í byrjun var
Þorsteinn Matthíasson skólastjóri
á Blönduósi.
Hvemig vinnið þið rítið?
Við vinnum það þannig að
ritnefndin kemur saman á nokkra
fundi og þá venjulega á kvöldin
og vilja fundimir gjaman dragast
til 2-3 á nóttunni. Því þetta eru
yfirleitt vinnufundir þar sem við
förum yfir efnið búum það til
prentunar eða prófarkalesum.
Síðan sendum við efnið í
prentsmiðjuna og fáum það aftur
og förum yfir prófarkirnar. Svo
þegar komið er að lokasprettinum
förum við til Akureyrar í
prentsmiðjuna og lesum í síðasta
sinn yfir. Þá gjaman gistum við
eina nótt á Akureyri og er það eini
kostnaðurinn vegna ritnefndar.
Oft hafa vísur orðið til við vinnu
ritsins og koma hér nokkrar.
Einu sinni komst sr. Hjálmar
Jónsson þá prestur í Bólstað og
ritnefndarmaður ekki á fund en
hringdi þessa vísu:
/ éljagangi jagast þeir
Jóhann, Bjöm og Unnar.
Býsnastyfir ljóðaleir
og lesa greinar þunnar.
Höfum stundum verið seinirmeð efhi.
Litlu síðar sama kvöldið svarar
Jóhann Guðmundsson Holti fyrir
hönd ritnefndar:
Þú ert klerkur kátur, hress
kenna viltoss lítið vers.
Það erlíkt og þrettán fress
þetta yrki, vertu bless.
Og gengu fleiri vísur á milli þetta
kvöld þó þær séu ekki birtar
héma.
Sér ritnefndin alveg um
rítið ?
Nei! það em aðrir aðilar er sjá um
dreifingu og innheimtu, bæði á
auglýsingum og ritinu. Annars er
aðaltími ritnefndar við ritið frá
áramótum og fram í apríl er það
kemur út. Og þá eru oft vikulegir
fundir.
Hvernig gengur með næsta
rít?
Ágætlega, það er töluverður hluti
af því farinn til Akureyrar í
setningu, en þó er talsvert eftir
eins og fréttir, og greinar er við
vitum um að eiga eftir að koma.
Þó við höfum stundum verið
seinir með efni hefur aldrei
brugðist að það kæmi ekki út á
réttum tíma, nema einu sinni er
það drógst aðeins. Þetta tækist
ekki svona vel nema vegna þess
að þetta hefur alltaf verið góður,
áhugasamur og samhentur hópur
er hefur unnið að ritinu.
Jæja Stefán ég þakka þérkærlega
fyrir þetta stutta spjall og óska
ykkur góðs gengis með
Húnavökuna.
33