Skinfaxi - 01.02.1986, Qupperneq 38
V ísnaþáttur
Skinfaxa
í síðasta þætti sendi Brynjólfur
Bergsteinsson "boltann" til Víkings
Gíslasonar, Amórsstöðum, Jökuldal
með eftirfarandi fyrri pörtum:
Oft er glatt á góðrí stund
gasprað satt og logið.
Hraustur sveinn erheimsins yndi
hvað er betra en fagur svanni.
f æskufólki orkan býr
og auðlegð þjóða.
Víkingur hefur nú botnað og svona líta
vísumar út hjá honum:
Oft er glatt á góðrí stund
gasprað satt og logið.
Brynjólfur með létta lund
löngum getur fiogið.
Hraustur sveinn er heimsins yndi
hvað er betra en fagur svanni.
Einnig þarfað ieika íiyndi
lánið til að skemmta manni.
í æskufólki orkan býr
og auðiegð þjóða.
Best að kasta fomum fýr
fyrirróða.
Að sjálfsögðu tóku fleiri þátt í leiknum
og V.Þ.S. sendir eftirfarandi:
Oft er glatt á góðrí stund
gasprað satt og logið.
Hefurmörg á mannafund
merkissagan smogið.
Hraustur sveinn er heimsins yndi
hvað er betra en fagur svanni.
Mörg að þessu meyjan myndi
miklu framarstanda manni.
í æskufólki orkan býr
og auðlegð þjóða.
Efhana ekki eiturknýr
ætti hún margt að bjóða.
Meðal fyrripartanna hefur verið sá siður
að einn byði uppá hringhendu og svo
var einnig að þessu sinni, en þeir
Víkingur og V.Þ.S. nýttu sér ekki þann
möguleika. J.S. gamall og tryggur
vinur þáttarins lét þetta hinns vegar ekki
fara framhjá sér, fremur en venjulega.
Hann fer á kostum eins og oft áður og
sendir þetta:
Oft er giatt á góðrí stund
gasprað satt og iogið.
Stikað hratt á stúlku fund
stritið hvatt og flogið.
Hraustur sveinn er heimsins yndi
hvað er betra en fagur svanni.
Sem að einn ég úti finndi
ólmann íað kynnast manni.
í æskufólki orkan býr
og auðlegð þjóða.
Alltaffinnst mér andblærhiýr
ungra ljóða.
Víkingur sendi ekki fyrriparta svo það
má segja að þessari lotu á austfjörðum
sé lokið. Austfirðingar hafa sent boltann
á milli sín í fjórum síðustu þáttum og
staðið sig með prýði. Við finnum okkur
því nýtt fórnarlamb og sendum
Steinþóri Þráinssyni, skólastjóra
Laugaskóla fyrriparta, til að botna.
Honum er svo ætlað að senda "boltann"
á ákveðið nafn með þremur nýjum
fyrripörtum.
Efrata norðurrétta leið
röð af fyrripörtum.
Og botnum reynistgatan greið
við góðum vísum skörtum.
Landsmót halda seggirsenn
slíku valda þessir.
Þegar vorar virðist mér
verkin léttarganga.
Bæði voru bísna heit
og bióðið nærri suðu.
"Boltinn" er þar með kominn til
norðanmanna og ekki er í kot vísað, þar
sem stórskáld munu vera nánast á
hverjum bæ í Þingeyjarsýslu eftir því
sem einn þeirra tjáði mér fyrir skömmu.
Góða skemmtun.
Með bestu kveðjum
Asgrímur Gíslason
38
Skinfaxi 1. tbl. 1986