Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1987, Síða 5

Skinfaxi - 01.12.1987, Síða 5
Annasamt ár að líða Þá er komið að lokum þessa árs, Landsmótsárs eins og þau eru oft nefnd, árin sem Landsmótin eru haldin. En þetta ár var einnig afmælisár. Ungmennafélag íslands átti 80 ára afmæli á árinu og þess var minnst innan hreyfingarinnar með veglegum hætti. Afmælishlaup á Landsmóti með þátltöku mörg þúsund barna og unglinga þegar undanfari þess um allt land er tekinn með. Þá var fyrir stuttu efnt til ráðstefnu um starfsemi ungmennafélaganna í nútíð og framtíð, í tilefni afmælisins og um kvöldið var haldið upp á afmælið með hófi og kvöldverði í boði menntamálaráðherra. Það er hins vegar ekki jafn ánægjulegt og fyrrnefnt, hvcrnig fjárveilingavald hins opinbera virðist ætla að minn ast þcssara tímamóta ungmcnnafélagshreyfingarinnar. S tórtækur niðurskurður á hefðbundnu framlagi þess til þeirr ar fjölbreyttu starfsemi scm fer fram innan hreyfingarinnar er afmælisgjöf sem ber því opinbera ekki fagurt vimi. Sem betur fer hafa fjölmargir þingmenn núverandi stjórnarflokka sem og stjórnarandstöðunnar, mótmælt þessum fyrirhuguðu aðgerðum og er því vonandi að þeir sem áætluðu þennan niðurskurð sjái að sér. Það væri að bcra í bakkafullan lækinn að fara að benda á mikilvægi þess að kostur ungmcnnafélaganna og Ungmennafélags íslands sem þjónustumiðstöðvar félaganna verði ekki þrengdur. Látið skal nægja að benda á þær greinar sem er að finna í Skinfaxa að þessu sinni til skýringar að einhverju leyú. Til að mynda fyrirlestra þeirra Þórólfs Þórlindssonar, Þráins Hafsteinssonar, og Helga Gunnarssonar sem þeir héldu á fyrrnefndri afmælis- ráðstefnu UMFÍ fyrir stuttu. Þá er ekki síður athyglisverð sú staðreynd hversu ungmennafélögin og fleiri aðilar hafa tekið fegins hendi þeirri ókeypis aðstöðu til gistingar sem er fyrir hendi í þjónustumiðstöðUMFÍ aðÖldugötu 14íReykjavík. Fráþví þessi gistiaðstaða var opnuð í janúar síðastliðnum og fram til 15. ágúst í sumar voru gistinætur í húsinu rúmlega 2000 talsins. Þetta er eitt dæmið af mörgum um þá þjónustu sem UMFÍ veitir aðildarfélögum sínum. I Skinfaxa er að þessu sinni efni úr ýmsum áttum. Nefna ber þó sérstaklega þá fyrirlestra sem birtir eru í blaðinu frá Afmælisráðstefnu UMFÍ í síðasta mánuði. Fyrirlestur Þórólfs Þórlindssonar vakti mikla athygli og hann er birtur hér í heild. Þá má einnig nefna viðtal við Gunnar Einarsson, þjálfara 1. deildarliðs Stjörnunnar í handknattleik karla. Þar fer maður með mikinn metnað eins og kemur fram í viðtalinu. Það kemur einnig fram mikill metnaður í viðtali við Reyni Karlsson, íþróttafullrúa ríkisins, um framtíð Laugarvams en nefnd vinnur nú að undirbúningi framtíðarskipan íþróttamiðstöðvar íslands á Laugarvatni. Við skulum vona að næstu ár verði jafn farsæl og það sem nú er að líða. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Ingólfur Hjörlcifsson. Útgefandi: Ungmennafélag íslands - Ritstjóri:Ingólfur Hjörleifsson - Ábyrgðarmaður: Pálmi Gíslason - Stjórn UMFÍ: Pálmi Gfslason, formaður, Þórir Haraldsson, varaformaður, Þórir Jónsson, gjaldkeri, Guðmundur H. Sigurðsson, ritari. Meðstjómendur:Dóra Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason, Sigurbjörn Gunnarsson. Varastjórn: Magndís Alexanders- dóttir, Hafsleinn Pálssson, Matthías Lýðsson, Sæmundur Runólfsson. - Afgreiðsla Skinfaxa: Öldugata 14, Reykjavík, S:91-12546 - Setning og uinbrot: Skrifstofa UMFÍ - Filmu- og plötugerð: Prentþjónustan hf. - Prentun: Prentsmiðjan Rún Allar aðscndar greinar er birtast undir nafni eru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ekki stefnu né skoðanir blaðsins eða stjórnar UMFÍ. Skinfaxi 5

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.