Skinfaxi - 01.12.1987, Page 30
Afmœli UMFÍ
tíma fyrir íþróttaiðkun hvort sem hún er í
formi almenningsíþrótta eða á sviði
keppnisíþrótta. Afreksíþróttamennimir
verða enn mikilvægari sem fyrirmyndir,
skemmtun og sem áhrifavaldar á
íþróttaiðkun. I framtíðinni verða gerðar
stórauknar kröfur um aukin tækifæri til
íþróttaiðkana sem ungmenna-
félagshreyfingin verður að vera tilbúin að
standa undir. Það verður best gert með
öflugu og skipulögðu starfi hreyfingarin-
nar.
Spumingar eins og hvert er hlutverk
heildarsamtakanna gagnvart
keppnisíþróttum, almenningsíþróttum,
afreksíþróttum? Hvert er hlutverk
héraðssambandanna? Hvert er hlutverk
einstakra ungmennafélaga? Hver á að sjá
um hvað, hvenær og hvemig?
Svör við spumingum af þessu tagi
verður að vera hægt að gefa og sína fram
á að skýr stefna sé það sem stuðst er við.
Slík stefnumörkun er vandaverk að vinna
en verður að vera fyrir hendi ef ekki á illa
að fara fyrir okkar ágætu þjóð sem gleypir
við fjölmiðlafárinu og vídeóvæðingunni
og rennir niður án þess að hugsa um
afleiðingamar. Ungmennafélags- og
íþróttahreyfingin í heild þarf að gera sér
grein fyrir að við stefnum hratt í að verða
hreyfingarleysi og offitu að bráð ef ekki er
vakaðáverðinumoggripiðtilaðgerða. Ef
ungmennafélags- og íþróttahreyfingin
gerir það ekki gerir það enginn.
íþróttastefna
UMFI ogíSÍverðaaðbeitasérfyrirþví
að samræmd íþróttastefna verið mörkuð í
landinu og sjái til þess og hafi eftirlit með
að henni sé hrint í framkvæmd. í stefnu
þessari komi skýrt fram hvenær
íþróttaiðkun skuli hafin og í hvaða formi
hún sé heppilegust miðað við aldur. Hve
mikla áherslu skal leggja á keppnisíþróttir
á hverju aldurskeiði. Helstu áherlsuþættir
í kennslu og þjálfun á hverju aldurs og
þroskaskeiði skulu vera greinilegir og vel
kynntir. Samvinna og verkaskipting
þeirra aðila sem að íþróttamálum vinna
skal vera öllum ljós. Svo sem hlutverk
skólaíþrótta og hvernig ríki og
sveitarfélög verði þátttakendur í að
framkvæma íþróttastefnuna.
Landssamtökin í samvinnu við
íþróttakennaraskóla íslands verði
leiðandi aðilar í menntun leiðbeinenda.
Skilgreint skal hlutverk hverrar
félagseiningar ( þ.e. félags, héraðs-
sambands.sérsambanda, heildarsamtaka)
gagnvart almenningsíþróttum og
keppnisíþróttum.
íþróttaiökun 12 óra og
yngri
Ungmennafélögin, íþróttafélögin,
skólamir og sveitarfélögin vinni sameig-
inlega að kynningu og útbreiðslu íþrótta á
sem víðustum grunni.
Skóli og ungmennafélög sjái um þen-
nan hluta starfsins að vetrinum. Kynntar
verði íþróttir í leikformi og umfram allt
reynt að gera iðkunina spennandi og
skemmtilega og við hæfi allra sem taka
þátt í þeim. Megináhersla skal lögð á
þátttökufjöldann og að hver og einn fái að
kynnast sem flestum greinum íþrótta.
Minni áhersla skal lögð á keppni í því
formisemgeristíeldrialdursflokkum. Ef
um keppni er að ræða skal hún vera í því
formi að hún hvetji til aukinnar þátttöku
og ánægju. T.d. að keppni í knattspymu
bama felist í því að einhverju leyti hvort
liðið sýnir betri boltameðferð og hvað
margar sendingar ganga á milli í stað þess
að miða eingöngu við skomð mörk.
Skólaíþróttakennslan og frjálsa
hreyfingin vinni sem mest saman að þessu
verkefni og samræmi aðgerðir sínar og
aðferðir. Koma skal í veg fyrir
sérhæfingu fyrir aldur fram.
Sveitarfélögin ásamt íþrótta- og
ungmennafélögunum sjái um að þessi
aldurshópur fái tækifæri til að halda áfram
íþróttaiðkun yfir sumartíman. Leikja- og
íþróttanámskeið, skólaíþróttir og
skipulagðar íþróttaæfingar em sá vettvan-
gur sem nota skal. Kynna skal íþróttir og
áhersla lögð á kennslu undirstöðu
tækniatriða í formi leikja og keppni sem
miðast við framkvæmd þeirra atriða sem
henta hverju aldursskeiði og hverjum
einstaklingi. Kennslan skal miðast við að
kenna leiki og fþróttir sem hentugt er að
stunda utan æfinga- eða leikjatíma. Allt
þetta skeið telst til almenningsíþrótta.
íþróttaiókun 12-16 óra
Þegar á þennan aldur er komið hefst
skeið keppnisíþróttanna. Unglingamir
velja þá úr eina til þrjár íþróttagreinar sem
þeir síðan æfa undir forystu þjálfara og
leiðbeinenda á vegum íþrótta- og
ungmennafélaganna. Ungmennafélags-
og íþróttahreyfingin sjái til þess að boðið
sé upp á sem fiestar greinar til að velja úr.
Lögð skal rík áhersla á félagslega þáltinn
á þessu skeiði og koma í veg fyrir að
aðeins þeir bestu fái tækifæri til að sprey ta
sig í keppni.Skapa verður þeim sem lakari
em tækifæri til að njóla sín; skapa þeim
verkefni við hæfi. Brottfall úr keppnis-
íþróttum er mikið á þessum aldri og
verður að taka á þeim málum með því að
bjóða upp á iðkun margra íþróttagreina til
þess að sem flestir finni eithvað við sitt
hæfi.
Ef erfitt er að bjóða upp á val milli
margra greina, verður að koma því þannig
fyrir að allir í fjölmennum keppendahóp
séu hluti af heildinni þó svo allir komist
ekki í A-liðið eða í allra fremstu röð.
Skemmtikvöld, ferðalög, keppnisferðir
eru mjög mikilvægur hluti þess félagslega
uppeldis sem þörf er á á þessum aldri.
Þjálfunin skal miðast að miklu leiti við
tækni og hraða en þó með stigaukinni
áherslu á þol og kraft.
Þeir sem ekki stunda keppnisíþróttir á
þessum aldri fá í flestum tilfellum sína
einu hreyfingu í skólaíþróttatímum.
Halda þarf þeim fjölda sem kemur upp úr
flokki 12 ára og yngri með einhveiju móti
í íþróttum, keppnisíþróttum eða
almenningsíþróttum. Ungmenna- og
íþróttafélögin sjái um keppnisíþróttimar
og skólinn um almenningsíþróttimar.
íþróttaiökun 16-20óra
Á þessu tímabili hefst sérhæfingin í
keppnisíþróttunum, þegar keppnisfólkið
ákveður að einbeita sér að keppni í einni
grein. Reglubundnar æfingar með áran-
gur íkeppni eru megin markmiðin. Aðrir
halda áfram keppni vegna þess
félagsskapar sem þeir tilheyra. Tækni-
þjálfun ásamt alhliða og sérhæfðri
uppbyggingu er megininntak
þjálfunarinnar.
Hlutverk ungmennafélags- og
íþróttahreyfingarinnar er að sjá um að
þetta eðlilega framhald frá fyrra stigi sé
fyrir hendi. Hvert félag skal leggja
metnað sinn í að eignast marga og
frambærilega keppnismenn og lið. Sama
vandamál blasir við í í þessum hópi í
sambandi við þá sem ekki hafa áhuga né
getu til að stunda harðar keppnisíþróttir
eins og 12-16 ára hópnum. Finna verður
leiðir til að koma í veg fyrir að ungt fólk
hætti að stunda íþróttir þegar komið er á
þennan aldur. Skólamir sjá um að bjóða
upp á almenningsíþróttir fyrir þá sem
þangað halda en ungmenna- og
30
Skinfaxi