Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1987, Side 33

Skinfaxi - 01.12.1987, Side 33
Afmœli UMFÍ hvers námskeiðs, sem svaraði launum leiðbeinanda. Pað er mitt álit að þetta samstarf hafi verið til fyrirmyndar fyrir samstarf frjálsra félagasamtaka og hins opinbera. Með tilkomu nýs námsefnis og leiðbeinendamenntunar fór af stað mikil skriða félagsmálafræðslu. Undir högg að sœkja Fyrstu þrjú árin þar á eftir voru haldin 115 félagsmálanámskeið víðsvegar um landið með á þriðja þúsund þátttakendum samtals. Hin síðari ár hafa að jafnaði verið haldin 20 félagsmálanámskeið á vegum ungmennafélagshreyfingarinnar, með þátttakendafjölda um 300 manns á ári. Því miður virðist sem starfsemi Félagsmálaskólans eigi nú undir högg að sækja. Æskulýðsráð ríkisins hefur hætt styrkveitingum til námskeiðanna, nema í formi fyrmefnds námsefnis. Sérstakur fjárstyrkur vegna leiðbeinenda á námskeiðum var hins vegar felldur niður. Ungmennafélag í slands hefur síðan styrkt félagsmálanámskeið sérstaklega úr eigin sjóðum. Á fyrstu árum Félagsmálaskóla UMFÍ fór fram mikil umræða um það hvemig tengja mætti þessa félagsmálafræðslu menntakerfinu. Hygg ég að enn sé mörgum spumingum ósvarað þar um. Innan ungmennafélagshreyfingarinnar vom menn yfirleitt sammála um að koma þyrfti á félagsmálafræðslu í öllum gmnnskólum, svo ekki sé nú talað um framhaldsskóla. Þess má einnig geta að gefið var út sérstakt námsefni í félagsstörfum ætlað gmnnskólum. Því miður hefur félagsmálafræðsla í skólum þó ekki orðið almenn. Ástæður þessemeflaustmargar. Ein meginforsen- dan fyrir því að svo megi verða hlýtur að vera sú að kennarar fái til þess menntun og þjálfun. Á því virðist hafa orðið misbres- tur. Skylt er þó að geta þess að íþróttakennaraskóli íslands gerir þessu máli góð skil, en sama verður því miður ekki sagt um Kennaraháskóla Islands. Nokkuð bar einnig áþví að skólamenn sæju ekki nauðsyn þess að veita félagsmálafræðslu af því tagi sem við er átt, og útskýrt var í upphafi máls míns. Ef til vill hafa skólamir átt fullt í fangi með að kenna sínar hefðbundnu námsgreinar. Tilviljun rœður Útkoman varð í stuttu máli sú að félagsmálafræðsla var veitt íþeim skólum sem höfðu á að skipa kennurum sem höfðu hlotið leiðbeinendamenntun til félagsmálafræðslu og skildu um hvað málið snerist. Flestir þeirra höfðu einnig bakgrunn í ungmennafélagshreyfingunni Á nómskeiöi í Félagsmálaskóla UMFÍ. eðaöðrumfélagasamtökum. Afþessumá ráða að tilviljanir geta ráðið því hvort nemendur fá félagsmálafræðslu í skólum landsins. Líkumar á því að nemandi fái umrædda fræðslu em þó mun meiri ef hann er búsettur úti á landi. Vissulega hljóta nemendur í öllum skólum að komast í snertingu við einhverja þætti sem flokka má undir félagsmálafræðslu, t.d. hópstarf og tjáningu, þó ekki sé um skipulega félagsmálafræðslu að ræða í þeirri merk- ingu sem fyrr getur. Ennfremur má segja að öll móðurmálskennsla hljóti að stuðla að auknum möguleikum einstaklinga til að tjá sig. Á það hefur líka margoft verið bent að kennsla í munnlegri tjáningu og framsögn ætti að vera hluti af íslenskukennslu. Það er alvarleg staðreynd að fólk geti komist ígegnum menntakerfi þjóðarinnar allt frá grunnskólastigi til háskólastigs, án þess að fá nokkra hugmynd um það hver- nig fundur gengur fyrir sig eða hvemig félag starfar. Enn alvarlegra er það hversu litla þjálfun fólk virðist fá við að tjá sig í töluðu máli og rituðu. Ég held að menn átti sig yfirleitt ekki á mikilvægi þess að kunna skil á þessum hlutum, og eru stjórnmálamenn og skólamenn þar ekki undanskildir. Ég byggi þessa skoðun mína á því að ef fyrrgreindir aðilar skildu raunverulega um hvað málið snýst myndu þeir beita sér fyrir úrbótum. Um þetta get ég einnig dæmt nokkuð af reynslu minni sem framhaldsskólakennari (réttara sagt leiðbeinandi). Það er lítið gagn að því að mennta fólk og miðla því þekkingu ef það getur ekki komið henni frá sér. Mér dettur í hug tölva sem hlaðin er upplýsingum, en ekkert næst út úr henni. Menn geta t. d. vitað allt mögulegt um hagfræði, en sú þekking kemur ekki að hálfu gagni ef þeir eiga í erfíðleikum með að tjá sig. Og það er nánast alveg sama hvar við berum niður. Allirþurfaaðgetatjáðsig. Skyldu veðurfræðingar fá þjálfun í framsögn einhvemtímaá sínum námsferli. Það gæti komið sér vel fyrir þá sem koma fram í sjónvarpinu. Svona gætum við tekið allar starfsstéttir. Við hlýðum varla svo á fréttatíma í fjölmiðli að ekki stingi í eyrun málfarslegir hortittir og ambögur af einhverju tagi. Það er ekki síður mikilvægt að menn geti tekið til máls á fundum og kunni skil á fundarsköpum. Það er allt of algengt að fólk sé einhliða þiggjendur upplýsinga sem aðrir matreiða í stað þess að taka þátt í mótun og framvindu mála. Eða eigum við kannske að láta til þess kjöma stjórnmálamenn um að taka allar ákvarðanir fyrir okkur. Góðir tilheyrendur. Ég hefi reynt að gefa mynd af framlagi ungmenna- félagshreyfingarinnar til félagsmála- fræðslu í landinu og samstarfi við opinbera aðila þar um. Ennfremur má af máli mínu ráða að víða sé pottur brotinn í þessum efnum. Niðurstaða mín hlýtur því að vera sú að ungmennafélagshreyfingin eigi enn veric að vinna á sviði félagsmálafræðslu, vemdun móðurmálsins og fjölmörgum öðmm sviðum. Loks leyfi ég mér að láta í ljós ósk um gott samstarf við alla þá sem vilja leggja okkur lið. Skinfaxi 33

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.