Skinfaxi - 01.12.1987, Blaðsíða 36
Íþróttahátíð
Valur Þorsteinsson á fleygiferð í körfuboltanum
Þessar stúlkur léku til úrslita í Badminton stúlkna 15 ára
Sigríður Geirsdóttir (t.v.) vann Heidi Johansen (t.h.) eftir
haröa og skemmtilega keppni. Þœr eru báöar í
Skallagrími.
Og þessar unnu til verðlauna
í badminton. Elín
Guðmundsdóttir til vinstri og
Þórdís Sif Sigurðardóttir til
hægri.. Þær eru 10 ára gamlar.
Elín sagði aðspurð að þetta
væri í fyrsta sinn sem hún ynni
til verðlauna. Hún hefði þó
keppt áður á móti, í fyrra.
“Ég æfi með Skallagrími
tvisvar í viku. Það er mjög
skemmtilegt, ég ætla halda
áfram”, sagði Elín.
Karfa á vetuma
fótbolti á sumrin
í körfuknattleikskeppninni var mikill
fjöldiliðamætttilkeppni. Borgarnesliðin
báru sigur úr býtum í fiestum flokkum
eins og vænta mátti þar scm Borgncsingar
hafa besta aðstöðuna með sína
íjjróttamiðstöð.
Einn piltur vakti nokkra athygli fyrir
góða frammistöðu, Valur Þorsteinsson,
en hann leikur mcð 4. fiokki Skallagríms.
Liðin í keppninni voru aldursskipt og lck
Valur í hópi 13 til 14 ára. Valur er 14 ára
og má segja að hann hafi borið af í
körfuboltanum enda nokkuð stærri en
flestir meðspilarar en auk þcss með góða
boltameðferð og nokkuð gott auga fyrir
spili.
Valur var tekinn tali eftir að
körfuknattleikskeppninni var lokið og
spurður hvort körfuboltinn væri hans
aðalgrein. Svo var nú ekki.
“Ég spila fótbolta á sumrin með
Skallagrími og er mest fyrir fótboltann.
Enkarfanræðurá vetuma. Égerbúinnað
vera í þessum greinum nú í 4 til 5 ár.
-Og ætlar að halda áfram?
“Alveg hiklaust.”
-Og hvemig er nú aðstaðan?
“Hún er nokkuð góð. Við erum með
ágætt hús hér í Borgamesi og ágætan
þjálfara í körfunni, Þorstein Jensson. En
það er hálfgert vesen með þjálfaramálin.
Það er allt of mikið um skipli, alltaf nýir
og nýir þjálfarar. Það er mjög slæmL
Þetta á jafnt við um körfuna og fótboltann.
Og mér finnst vanta mikið meiri
tækniþjálfun. En þetta er mjög gaman
þrátt fyrir það.”
-Og hver er nú vinsælasta
íþróttagreinin?
“Árciðanlega fótboltinn.”
36
Skinfaxi