Skinfaxi - 01.06.1988, Blaðsíða 18
Göngudagur fjöskyldunnar
Göngudagur fjölskyldunnar var haldinn var 25 júní síðastliðinn.
Reyndar var hann þann 26. júní víða og annars staðar á enn eftir
að halda hann. Veðrið, forsetakosningar og úrslitaleikur í
Evrópukeppni landsliða hafði sitt að segja. En hér eru nokkrar
myndir frá deginum úr Þrastaskógi og Ólafsfirði.
Ungmennafélagið Fjölnir hélt hátíðlegan daginn
í Þrastaskógi og hafði með sér fólk á öllum aldri
úr Stjörnunni í Garðabæ og Víkingi, Reykjavík
(myndir að ofan). Ratleikur, grillveisla og
knattspyrna hafði ofan af fyrir fólki og vel það. Á
Ólafsfirði var gengið upp fyrir bæinn á sunnu-
deginum í góðu veðri. Forsetakosningum lokið
en Leiftursleikur um kvöldið tók sinn toll. Á
Ræktun lýðs og lands
saga Ungmennafélags íslands 1907 -1982
Við viljum minna ykkar á þessa
bók sem er nauðsynleg fyrir alla
þá er vinna að og fylgjast með
málefnum ungmennafélags-
hreyfingarinnar.
Þessi bók er til sölu hjá héraðs-
samböndum, stjórnarmönnum
UMFÍ og á skrifstofu UMFÍ.
Bókin kostar sem fyrr
aðeinskr. 1000
,
Ungmennafélag Islands75 ára
1907-1982
Gunnar Kristjánsson tók saman
18
Skinfaxi