Skinfaxi - 01.06.1988, Page 26
Grafarvogur
Verðandi knattspyrnuhetjur Fjölnis?
sumar stefnt á keppnisferðir út á land. Nú
þegar er svo til ákveðið í ferð á
Homafjörð með 6. flokk. Akranes er í
sigtinu. Þar verður haldið svonefnt Hi Ci
mót fyrir yngstu flokkana.
“Svona lagað verður að vera inni í myn-
dinni”, segir Jóhannes. “Þá hafa þeir að
einhverju að stefna. Og það er kjörið að
keppa í svona mótum og fá einhverja
reynslu í stað þess að æða beint í
Islandsmót og keppa við rótgróin
Reykjavíkurlið. Það gæti orðið gusa í
andlitið.”
Þófyrstu æfingarhafi veriðáalltoflitlum
malarvelli inni í miðju Grafarvogshverfi
hefur nú verið bætt úr því. Grasvöllur
hefur verið útbúinn í land Keldna. Þar er
nú ágætur grasvöllur til æfinga. “Þar
verðum við í sumar”, segir Jóhannes.
“ Við getum verið hreyknir af því að okkar
fyrsti völlur sé grasvöllur. Það eru ekki
allir sem geta státað af slíku.
Fjölnir hefur fengið vilyrði fyrir
framtíðarsvæði í Grafarvogi fyrir
íþróttimar. Eftir því sem forráðamenn
Fjölnis vita best verður farið að skipu-
leggja það svæði strax í haust og er stefnt
að því að þar verði kominn stór
malarvöllur og búningaaðstaða næsta
sumar.
Hugurinn er svo mikill í Fjölnismönnum
að það er byrjað að skipuleggja þátttöku í
4. deild (meistaraflokkur) næsta sumar.
“Það eru komnir fjórir á lista og nýir
Steinþór þjálfari með upphitun hjá 5. flokki.
bætast við næstum á hverjum degi”, segir
Guðmundur. “Ég var að fá símanúmer nú
áðan hjá einum líklegum. Við hringjum í
hann í kvöld. Þetta með 4. deildina er nú
mest til gamans gert. Til að vera með.”
“Við skorum auðvitað þegar við komumst
í færi”, skýtur Jóhannes inn.
En Fjölnir verður ekki aðeins með
fótbolta í sumar. Frjálsar íþróttir eru
einnig á dagskránni.
“Það kom okkur nú satt að segja nokkuð á
óvart að það voru fleiri sem skráðu sig í
frjálsar íþróttiren knattspyrnuna. Það eru
á þriðja hundraðið skráðir á
íþróttaæfingar. Milli 80 og 90 á
knattspyrnuæfingar og vel yfir hundraðið
í frjálsar íþróttir. Frjálsíþróttaæfingarnar
byrja 26. júní og verða fram í endaðan
ágúst. Við verðum með tvö mót þar.”
Það bjuggust fáir við slíkri þátttöku í
frjálsíþróttirnar. Flestir töldu
knattspymuna vera aðaláhugamálið en
annað kom í ljós, það skráðu sig fleiri í
frjálsar. Það ámeðal annars sína skýringu
í því að stúlkur skrá sig mun frekar í
frjálsar en knattspymu. Síðan virðast
margir sem skrá sig í allt sem þeir komast
“Þátttakan var ekki næg hjá stelpunum í
fótboltann til að koma upp kvenna-
flokki”, segir Jóhannes. “Annars er hér
ein stelpa í 5. flokki, Hjördís
Símonardóttir, sem er mjög góð í
knattspymu. Hefur ýmislegt til að bera
sem strákarnir hér hafa ekki náð valdi á
enn. Hún er í Fylki og hefur æft þar. En
hún hefur alltaf mætt á æfingar hjá okkur
líka, þetta er fyrsta æfingin sem hún mætir
ekki á. Þannig að það vantar ekki
efniviðinn. Nú verðum við stjómarmenn
og þjálfarar bara að hafa undan.”
Það er óhætt að segja að framtíðin brosi
við Fjölnismönnum. Það er m'ikið að
gerast hinum megin við Gullinbrú.
IH
26
Skinfaxi