Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1992, Síða 27

Skinfaxi - 01.08.1992, Síða 27
G R E 1 N 07 Þráinn Hafsteinsson íþróttafræðingur skrifar: Þjálfun ungs afreksfólks í íþróttum V, / undanförnum greinum mínum um íþróttaþjálfun hef ég fjallað um það á hvaða hátt væri skynsamlegast að kynna yngstu börnunum íþróttir, hvaða íþrótta- þjálfun væri heppilegust síðustu árin fyrir kynþroskaskeiðið og hverjar gætu verið bestu aðferðirnar við þjálfun unglinga á kynþroskaskeiðinu. Nú er komið að umfjöllun um þjálfun ungs afreksfólks í íþróttum og er þá átt við árin eftir að fullum lengdarvexti lýkur og fram yfir tvítugt, eða aldurinn frá 16,17-22 ára. Sérhæfingin eykst Eins og áður hefur komið fram ætti að leggja mikla áherslu á alhliða þjálfun á æsku- og ung- lingsárum og um leið að hefja sérhæfingu ekki of snemma. Þegar kyn- þroska- og lengdarvexti er náð er ljóst hver líkamsbygging viðkom- andi einstaklings verður og því er kominn tími til að sérhæfa sig, ef við- komandi einstaklingur ætlar sér að verða afreks- maður í íþróttum. Keppni afreksmanna nú á dögum er það hörð að afreksmenn komast ein- ungis í undantekningartilfellum hjá því að sérhæfa sig í einni íþróttagrein (knattspyrnu, handknattleik, frjálsum íþróttum o.s.frv.). Til þess að verða af- reksmaður í íþróttum þarf það tíma- og orkufrekar æfingar að óhugsandi er að geta stundað fleiri en eina íþróttagrein á sama getustigi. Frjálsíþróttamenn velja sér þá t.d. 1-3 greinar, sem þeir leggja megináherslu á, t.d. 100 m hlaup sem aðalgrein, langstökk og 200 m hlaup sem aukagreinar. Þetta eru greinar sem krefjast svipaðra hæfileika af einstakl- ingnum til þess að góður árangur náist. Flokkaíþróttamenn spila meira og meira ákveðnar stöður á vellinum en áður var o.s.frv. Markmiðið er keppnisárangur Ólíkt því sem var í yngri flokkunum er nú aðalmarkmiðið að ná góðum ár- angri í keppni við aðra, eða í keppni við metra og sekúndubrot. Meginmarkmiðið með iðkun afreksíþrótta er að ná há- marksárangri á alþjóðamælikvarða. Sá undirbúningur sem börnin og ungling- arnir hafa fengið, hafi þau gengið í gegn um kynningu og þjálfun eins og lýst hefur verið í fyrri greinum mínum, er talinn heppilegur og á að gera þau hæf- ari en annars lil að takast á við þær miklu og erfiðu æfingar og mót sem þeirra bíður þegar aðalmarkmiðið er orðið að ná góðum árangri í keppni. Áframhaldandi þátttaka í erfiðum æf- ingum og tímafrekum veltur nú meira á því en áður hvort viðkomandi sér fram á að honum gangi vel eða illa í erfiðum mótum og leikjum á næstu árum, og því hvort líkamlegir og sálrænir hæfileikar einstaklingsins eru nægilega miklir til að um raunhæfa möguleika á frambæri- legum árangri verði að ræða. Hvað ræður valinu á íþróttagrein? Þegar hér er komið sögu liggur orðið nokkuð ljóst fyrir hvaða íþrótta- grein muni liggja best fyrir viðkomandi út frá líkamlegum hæfileikum. I mörg- um tilfellum sérhæfir viðkomandi ein- staklingur sig einmitt á því sviði þar sem líkamlegu hæfileikamir eru mestir. Allmargir láta félagsskapinn og það hvað þeim finnst skemmtilegast ráða valinu og sérhæfa sig ef til vill í íþrótta- grein sem liggur ekki hvað best fyrir þeim miðað við líkamlega hæfileika. Sumir velja íþrótta- grein út frá því hvort um einstaklings- eða hóp- fþrótt er að ræða, aðrir eftir því hvar sálrænir hæfileikar liggja, enn aðrir eftir fjárhagslegum möguleikum og aðstæð- um. Þjálfarar, félagar, foreldrar, ættingjar og aðrir íþróttamenn hafa sín áhrif og einnig gegn- ir aðstaðan í heima- byggð, eða á þeim stað þar sem viðkomandi ætl- ar sér að stunda íþróttir, stóru hlutverki. Stóraukið æfingaálag fyrir tvítugt Flver sem ákvörðunin verður er víst að ætli íþróttamaðurinn ungi að ná langt í íþrótt sinni eða nýta þá hæfileika sem í honum búa, bíða hans þrotlausar æfing- ar. Samkvæmt nýjustu rannsóknum er talið að mannslíkaminn þoli hvað mest æfingaálag og sé hvað móttækilegastur fyrir miklum æfingum í kringum tví- tugsaldurinn. Eftir að fullum lengdarvexti er náð Skarphéðinn Ingason HSÞ horfir ákveðinn á eftir spjótinu á ULM í sumar. Skinfaxi 27

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.