Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1992, Síða 33

Skinfaxi - 01.08.1992, Síða 33
V I Ð T A L sem þeir þurfa að uppfylla er að vera á heimsmælikvarða. Sundmenn þurfa að æfa 6-7 tíma á dag til þess að vera meðal hinna bestu, eða til þess að eiga einhverja möguleika, en það tryggir þeim samt ekki neitt. Hópíþróttamenn þurfa ekki nema helminginn af þeim æfingatíma til þess að eiga möguleika á að vera meðal þeirra bestu. Sarnan- burðurinn er þannig óraunhæfur og ósanngjarn að mörgu leyti. Nú, það gefur auga leið að einstakl- ingssálfræðin og hópsálfræðin eru tveir svolítið ólíkir þættir. Við getum spurt okkur að því hverjir fara í einstakl- ingsíþróttagreinarnar og hverjir fara í hópíþróttagreinarnar og það er stundum sagt að þeir sem eru í einstaklings- íþróttagreinum séu meiri egóistar, en ég held að þeir þurfi einfaldlega að vera það því við vitum að það þarf gífurlega ögun til þess að vera einn. Ef við ætlum að fara út að hlaupa, þá er miklu auðveldara að hlaupa með einhverjum en að hlaupa einn. Síðan er öll tækni að mörgu leyti flóknari í einstaklings- fþróttagreinunum en í hópíþróttunum. Smáatriði, t.d. í köstunum og í sundinu, skipta gífurlega miklu máli og þarf að brjóta niður í smæstu einingar. I spjót- kastinu þýðir ekkert að berjast, eins og í handboltanum. Spjótkastarinn þarf að korna sér í visst hugarásland og sjálfs- traustið skiptir rniklu máli. Það getur enginn annar kastað fyrir hann ef hann klikkar, en í hópíþróttunum er hægt að skipta inn á. Að vera meðal þeirra allra fremstu sem einstaklingur er mun flókn- ara en að ná árangri sem hópur, svona samanburður er samt sem áður eiginlega gagnslaus, en fólk ber þetta alltaf saman án þess að gera sér grein fyrir að það er í raun óraunhæft. Það segir: Sigurður Einarsson er númer fimm og landsliðið fjögur.“ Mætti fara með öðruvísi hóp fararstjóra út? „Það sem mér finnst að menn ættu Iíka að velta vel fyrir sér er hvort þeir 17 fararstjórar sem fara á OL séu allir að aðstoða íþróttamennina, ættu einhverjir aðrir að fara með? Bæði bridds- og skáklandsliðið leggja mikla vinnu í sál- fræðilegan undirbúning. Hver aðstoðar Einar Vilhjálmsson og marga þessa einstaklingsíþróttamenn, ég held að það þurfi að vinna með þetta fólk, sjálfs- traust þeirra og fleira, þannig að ég tel að þarna sé pottur brotinn. Hjá sundstelpunum virðist mér sem andlega hliðin hafi brostið, því þær voru búnar að leggja mikið á sig við æfingar, en samt standa þær ekki undir eigin væntingum og þeim væntingum sem aðrir gera til þeirra. Það er eins og þær nái ekki „að toppa“ á réttum tíma eins og sagt er og sarna má segja um Einar Vilhjálmsson, því þrernur dögunt seinna kastar hann 83 metra. Eg er viss um að ef sundstelpurnar hefðu náð þessu topp- formi líkamlega og andlega á réttum tíma þá hefðu þær náð sínu besta, því þannig komust þær á OL. Það virðist vera sem spennan hafi verið meiri á Einari en Sigga og maður sér greinilega að Siggi virðist ráða mun betur við spennustigið á stórmótum en Einar. Mér sýnast einstaklingsíþróttamennirnir oft enga aðra þjálfara hafa en sjálfa sig og ég hef oft velt því fyrir mér hvort þeir eru tilbúnir til þess að taka tilsögn eins og hópíþróttamennirnir. Mér sýnist líka þurfa að vinna með Pétri. Hann virðist hafa mikinn, líkant- legan styrk og æfir stíft, en mér finnst vanta á andlegu hliðina þegar á hólminn er kontið. Og þetta eru atriði sem íþrótta- mennirnir þurfa einfaldlega að vinna með og það er ekki hægt að segja að það sé eitthvað að þessu fólki. Þessu má líkja við handboltamanninn sem er góð- ur í sókn, en slakur í vörn og þá þurfum við að leggja áherslu á varnarleikinn og æfa hann þar.“ Sálfræðilegur undirbúningur er minni en í öðrum löndum „Hér á Islandi þyrfti að stefna öllum landsliðsþjálfurum saman í þrjá daga á ári, þar sem þeir myndu skoða hvað þeir gætu nýtt hver frá öðrum. Hvað getur einstaklingsíþróttaþjálfarinn lært af landsliðsþjálfaranum í handbolta, hvern- ig byggir hann upp hópinn og öfugt. I Sviss, Þýskalandi og fleiri löndum er það árlegur viðburður að ýntsir sér- fræðingar hittist og ræði hvernig nýta ntegi ýmsar upplýsingar. I Þýskalandi er Ol-nefndin á hverju svæði með miðstöð sérfræðinga á þeirn sviðum sem menn eru sammála unt að skipti rnáli til þess að ná árangri. Þeir veita íþróttamönnum og þjálfurum sem fara á ÓL faglega ráðgjöf. Hér er þetta tilviljanakennt og hver og einn er að reyna að bjarga sjálfum sér. Og mér finnst Ólyntpíu- nefndin engan veginn hafa staðið sig í þessu, því mjög auðvelt væri að koma slíku á laggirnar hér. Við eigum fullt af menntuðu fólki sem getur gefið ráð- leggingar. Sálfræðilegur undirbúningur hér á landi er minni en víða annars- staðar. Samt er næg þekking til, hér eru margir sérfræðingar, sálfræðingar, þjálf- unarfræðingar og einnig er auðvelt að fá menn að utan án þess að kosta þurfi alltof ntiklu til. Það er eins og fslend- ingar vilji oft vinna í einrúmi, það er eins og menn séu hræddir við að miðla öðrum. Það vantar bæði samstarf milli íþróttagreina og þjálfara innan sömu greina en það er eins og hér sé einhvers konar smákóngahugsunarháttur ríkjandi. Menn verða að læra að þiggja ráðgjöf, það er vænlegra til árangurs. Menntun þjálfara er ekki heldur nógu góð, við eigum góðan efnivið og stór hópur manna gæti orðið topp- þjálfarar ef staðið yrði rétt að upp- byggingunni," sagði Jóhann Ingi Gunn- arsson. Skinfaxi 33

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.