Skinfaxi - 01.05.1996, Síða 8
Ef við lítum í kringum okkur sjáum
við allt fullt af hlutum sem einn góðan
veðurdag enda á öskuhaugum landsins.
Fyrir utan það hefðbundna s.s.
matarúrgang, blöð, áldósir og
plastumbúðir eiga öskuhaugar eftir að
fyllast af hlutum eins og þvottavélum,
sjónvörpum, ísskápum og húsgögnum.
En hvað getum við gert heima fyrir til að
minnka það magn sem nú þegar
streymir á öskuhaugana og í
enduvinnsluna.
Pappír
Notaðu báðar hliðarnar á öllum þeim
pappír sem þú skrifar eða prentar á.
Endurvinnsla á blöðum, tímaritum,
bókum og bæklingum er mjög mikilvæg
til að vernda skóga jarðarinnar. Reyndu
að kaupa hluti unna úr endurunnum
pappír og kauptu aðeins endurunnan
pappír til einkanota heima fyrir. Bentu
fyrirtækjum á að nota frekar hitablásara
eða handklæði á salernum sínum í stað
pappírs.
Plast
Það sama gildir um plast og pappír.
Safnaðu saman plastumbúðum fyrir
endurvinnsluna. Ef matvörur koma í
plastumbúðum, þvoðu plastið og reyndu
að nota það heima fyrir, til dæmis til að
geyma matarleifar. Fáar þjóðir nota jafn
mikið af plastpokum og við Islendingar
en ein leið til að skera niður það magn
væri að nota t.d. sérstaka poka þegar
verslað er fyrir heimilið.
Gler
Það er mikilvægt að fara vel með
glerumbúðir þar sem þær eru lengi að
eyðast úr náttúrunni. Glerflöskum má
yfirleitt skila aftur fyrir peninga.
Vissir þú...
...að í maiiiis-
líkamanum eru
rúmlc&'a 650
vöðvar.
...að mannshjartað
vegur iiiiiina en
liált't kíló. slær
100.000 si n n ii in á
dag og dælir
tæplega 0000
lítrum af blciði.
...að iiianiiK-
líkaininn er 70%
vatn.
...að þegar maður-
inn brosir notar
hann 17 vöðva.
8 Skinfaxi