Skinfaxi - 01.05.1996, Side 9
Frábært
blað!
Ég er nýbúin að fá eintak af þessu blaði
(Forvarnablaði Skinfaxa) og líst mér
mjög vel
á það.
Mér
finnst
per-
sónurnar
sem
teknar
eru fyrir
alveg
hreint
frá-
bærar
°g
þykist
ég sjá að
rnikil vinna hefur verið lögð í þetta blað.
Hins vegar er tvennt sem mér fannst
vanta. Þ.e. þessu blaði er dreift um alla
landsbyggðina eftir því sem ég best veit
en mér finnst efnið í blaðinu, þ.e.a.s.
viðtölin við fræga fólkið vera dálítið
mikið um miðbæinn í Reykjavík (nema
hjá Palla). Nú fyrst þetta blað á að vera
gefið út fyrir landsbyggðina finnst mér
að það þyrfti að kanna aðstæður í öðrum
bæjum og segja dálítið frá því. Ég bý
t.d. á Akureyri og mér finnst það sem
sagt er í blaðinu um miðbæ Reykjavíkur
ekki vera neitt líkt til dæmis miðbæ
Akureyrar. Finnst mér að ráða þurfi bót
á þessu og fá einhverjar greinar um aðra
bæi. Hitt sem að mér fannst vanta var
viðtöl við „klín" og „un-klín" unglinga.
Það finnst mér vera mjög mikilvægt til
þess að unglingar geti fengið að sjá
muninn. Það sem ég er að meina er að
„un-klín" unglingur mundi tala um allt
annað en „klín" unglingur. Þetta fannst
mér vanta en annars verð ég að segja að
þetta var frábært blað og mjög gott efni í
því. Nú eitt enn langar mig að segja og
það er að ef þið hafið áhuga þá væri ég
meira en fús til þess að prófa að senda
ykkur greinar um það efni sem ég var að
tala um (allavega héðan frá Akureyri) og
ég vona að þið hafið tekið mark á
þessum athugasemdum.
Þóra Björk Otteseit
niii-iKiiiiit
------▼------
Það þekkja kannski fleiri Bryndísi
Ólafsdóttur sundkonu en Bryndísi
Ólafsdóttur aflraunakonu. Bryndís á
frækinn feril að baki sem sundkona en
nú hefur hún skipt um gír og hendir
lóðum, dregur bíla og hleypur með
Sterkasta
kona
Islands
sandpoka. í dag hefur Bryndís sýnt
þjóðinni að hún er ein sterkasta kona
landsins og nú nýlega vann hún einmitt
keppnina um titilinn sterkasta konan á
íslandi. Við hjá Skinfaxa óskum þessum
fjölhæfa íþróttamanni til hamingju með
titilinn og hver veit hvaða íþrótt Bryndís
tekur upp næst?
.. ytútnL&Skm
Hressir útlendingar, í
heimsókn hjá UMFI
Nítján einstaklingar frá 13
Evrópulöndum heimsóttu okkur hjá
UMFÍ í byrjun sumars. Heimsóknin var
á vegum Ungs fólks í Evrópu en
hópurinn kom hingað til lands til að
kynna sér starfsemi ungmennasambanda
og félagsmiðstöðva og til að kynnast
samstarfsmönnum frá öðrum löndum.
Á vikutíma heimsótti hópurinn meðal
annars athvarf Rauða Kross Islands, Hitt
Húsið, Ungmennafélagið Breiðablik og
íþrótta- og tómstundaráð í Reykjavík.
Síðustu tvo dagana var síðan farið farið
til Víkur, á Laugarvatn og endað í
Þórsmörk þar sem myndin að ofan er
einmitt tekin.
Skinfaxi 9