Skinfaxi - 01.05.1996, Side 7
Söngkonan, Emilfana Torrini, í viðtali
I
f
UMFÍ
a& var or&i& stutt í þa& að bla&ið færi í prentun
■ Vog erfitt haf&i reynst a& setjast ni&ur með
■^ Emiliönu og Ijúka viðtalinu sem hér kemur á
■ eftir. Bla&amaður Skinfaxa, Anna Svala, elti
hana uppi og mætti á tónleika Emiliönu á Astró. Það
var auðvitað erfitt að taka upp viðtalið þar vegna
hávaða svo ákveðið var að notast við einn vinsælasta
stað kvenmanna - stað þar sem stelpur fá alltaf að
vera í friði. Anna Svala settist einmitt niður með
Emiliönu á kvennaklósettinu á Astró og tók við hana
eftirfarandi viðtal.
Hvað finnst þér um áfengisneyslu unglinga í dag?
„Eg hef náttúr'lega aldrei verið inni í þessu og mitt uppeldi hefur
kannski verið eitthvað öðruvísi en flestra annarra. Eg er rosalega
á móti fíkn og það fer í taugarnar á mér þegar ég sé kannski í
einhverjum blöðum eða heyri foreldra segjast hafa keypt bjór
handa börnunum svo þau mundu ekki kaupa landa. Þetta segir
að foreldrarnir vita af börnunum dauðadrukknum í miðbænum og
það finnst mér eiginlega of mikið. Ef ég á nú að vera soldið
gamaldags og hallærisleg mamma, þá finnst mér bara að ef það
er verið að setja manni einhverjar reglur, skilurðu, þá segja til
dæmis lögin að það sé 16 ára aldurstakmark niðr'í miðbæ um
helgar. Eg meina, af hverju eiga krakkarnir þá yfirleitt að hlusta
á foreldrana ef þeir leyfa þeim að brjóta þessar reglur?"
Hefur þú notað fíkniefni?
„Nei. Ég hef prófað hass og ég var bara eiginlega skíthrædd -
drulluhrædd. Ég var hrædd um að sköpunargáfan eyðilegðist,
ímyndunaraflið eyðilegðist og ef maður notar þetta verður maður
ekkert meira en einhver einhver, skilurðu."
Verður þú mikið vör við fíkniefni í tónlistarheiminum?
„Ég er voðalega út úr öllu i tónlistarheiminum, ég er einhvern
veginn aldrei þar sem ég á að vera þannig að ég hef eiginlega
ekkert tekið eftir því. Auðvitað er þetta til og ég hef heyrt mikið
af þvi þótt ég trúi kannski ekki þvi sem ég heyri. Ég veit að það
er eitthvað um þetta í tónlistarheiminum en ekki mikið. Það er
hins vegar mikið af þessu í gangi og maður getur til dæmis ekki
labbað niður í bæ án þess að manni sé boðið þrisvar sinnum spítt
eða E eða hass eða hvað sem þefta heitir."
Verður þú mikið vör við að ungir krakkar eigi i
vandamálum með neyslu?
„Það er soldið, en hvað kallar maður neyslu - af hverju er verið
að banna eiturlyf, ég meina er ekki vín líka vímuefni ef maður
notar það - skilurðu? Ég skil heldur ekki alveg foreldra að vera
hrædd við einhver fíkniefni en leyfa svo börnunum vera niðrí bæ
um helgar - skilurðu? Ég næ ekki alveg þessari fáránlegu
uppstillingu á þessu máli, mér finnst þetta allt foreldrunum að
kenna og ef foreldrar eru svekktir er þetta bara þeim að kenna -
þetta eru krakkarnir þeirra sem eru niðrí bæ á blindafylliríi. Þetta
er allt eins og Amal Quase sagði í einum þætti sem mér fannst
mjög sniðugt. Hún sagði kvenmenn alltaf vera að kvarta yfir
SkinfaxI/7