Skinfaxi - 01.05.1996, Blaðsíða 9
SkinfaxI/9
eg segi.
Nú hefur þér gengib mjög vel í tónlistarbransanum, er
hægt að lifa eingöngu ó tónlistinni hérna á íslandi?
„Þa& er hægt aS lifa á henni ef maður er á toppnum en ef maður
fer aðeins fyrir neðan toppinn er það ekki sjéns. Hins vegar, eru
peningarnir líka fljótari að fara þegar maður er á toppnum því
kostnaðurinn verður allur meiri. Það skiptir til dæmis rosalega
miklu máli að kaupa sér föt þegar maður er að koma oft fram og
ég þoli það ekki og veit fátt leiðinlegra en að máta föt. Fötin eru
mikilvæg fyrir mig þar sem ég tala aldrei og verð því að vera
áberandi á annan hátt á sviði."
Verður mikið að gera hjá þér i sumar?
„Eg sjálf geng alltaf fyrir og þess vegna fer ég út að skemmta mér
í mánuð í sumar. Eg ætla ekki að spila á böllum nema þá að ég
verði með tónleika á undan hljómsveitinni. Það kemur bara ekki
til mála að ég spili á böllum lengur, ég er búin að fá algjört
óverdós á því og svo finnst mér svo gaman að spila á tónleikum
þar sem fólk situr og er alveg að hlusta á mann - skilurðu."
Er stefnan sett á útlönd?
„Ekkert endilega, mér er alveg sama. Eg veit ekkert hvernig það
er að vera frægur eða að vera í útlöndum og er því ekki að
missa af neinu. Eg hugsa voða lítið um þetta og er
ekkert að gera mér neinar stórar vonir - eiginlega
engar vonir. Núna er ég bara það sem ég er,
mig langar til dæmis að fara til Ítalíu og læra málið en ef eitthvað
gerist þá gerist það bara."
Af hverju varð hljómsveitin Spoon svona vinsæl?
„Eg veit það ekki. Þetta voru mjög klárir strákar að semja tónlist.
Eg átti bara ekki heima almennilega I þessari tónlist en þessir
strákar eru alveg rosalega klárir."
Var ástæðan fyrir því að þú hættir með Spoon þá
tónlistin?
„Það var bara vegna tónlistarinnar og kom strákunum ekki við. I
sumum fjölmiðlum var verið að kenna söngvaranum um þar sem
ég fékk ekki að syngja nógu mörg lög á plötunni en það er algjör
della því ég ákvað sjálf að syngja ekki fleiri lög. Eg söng bara
þau lög sem ég vildi syngja og annað var ekki tekið í mál. Þeir
leyfðu mér að hafa alveg frjálsar hendur og fengu svo eitthvað
svona upp á mójj^éi^stgáinn. Eg var rosalega reið yfir því."