Skinfaxi - 01.05.1996, Side 40
w
Iþróttamenn án áfengis
„Allir eru sammála aS árangur í íþróttum
og áfengi fari engan veginn saman og
margir þjálfarar hafa skýrar reglur þar
um og fara eftir þeim. Þannig
fyrirmyndum þurfum við á að halda í
íþróttum og getum með góSum aga á
þessu sviSi náS góSum árangri. Tökum
okkur til fyrirmyndar stelpuna sem sagSi
við móSur sína áSur en hún fór með landsliðinu í keppnisferS
til útlanda: „Mamma, ég hlakka til að fara í þessa ferð því
allir verða edrú." (Stöðvum unglingadrykkju)
Herðum róðurinn
Davíö Oddsson um það hvort leyfa
ætti takmarka&a notkun
kannabisefna á Islandi:
„Nei. ÞaS eru léttvæg rök að þar sem illa
hafi gengið að halda ólöglegri
fikniefnaneyslu í skefjum sé rétt að lögleyfa
hana. Slíkt getur einungis haft aukna neyslu í för með sér en
fíkniefnaneytendur eru hættulegir sjálfum sér og umhverfinu
sínu. Því ber að herða róðurinn gegn fíkniefnum frekar en
hitt. Nýleg könnun sem gerð var á vegum Háskólans sýndi
að flestir Islendingar telja að fíkniefnaneysla sé mesta
afbrotavandamál á Islandi. Það ætti að verða okkur enn
frekari hvatning. (Tímaritið ÁHRIF, apríl 1995)
Lífshættulegt
Oprúttnir sölumenn ná til
ungmenna, sem ekki hafa
verið í vímuefnaneyslu áður,
með því að telja þeim trú um
að alsæla sé með öllu hættu-
laus og neyslunni fylgi engar
aukaverkanir. Þetta er al-
gjör fjarstæða, alsæla er
ofskynjunarlyf og neysla
hennar getur verið lífshættu-
leg.
Olafur Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður
Morgunblaðið 12.06.96
Börn og fullorðnir
Margir foreldrar láta undan
þrýstingi frá börnum sínum
um að kaupa áfengi fyrir
þau eða horfa í gegnum
fingur vegna áfengisneyslu
þeirra á þeirri forsendu að
þeir neyti sjálfir áfengis og
geti því ekki bannað börnum
sínum að gera það. Þetta er
alrangt það gildir alls ekki
það sama um börn og
fullorðna aS þessu leyti.
Arni Einarsson
framkv.stjóri Fræðslumið-
stöðvar í fiknivörnum
Stöðvum Unglingadrykkju
r l
„Þeir sem nota alsælu
Kannabisefni
virðast ekki vera
dæmigerðir
fíkniefnaneytendur,
heldur dæmigerðir
framhaldsskólanemar."
Ólafur Ólafsson
landlæknir
Morgunblaðið 12.06.95
L
Kannabisefni
eru fyrst og
fremst hættu-
leg ungu fólki
og ástæban
fyrir því er sú
a& efnið
safnast fyrir í
miðtauga-
kerfinu og
hefur áhrif á
persónu-
leikagerðina og miklu meiri
áhrif á ómótaðan persónuleika
heldur en vel mótaðan.
(Þórarinn Tyrfingsson)
Q VIKUR
S PRJÓN '/
40 / SkinfaxI
UMFI