Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.2001, Qupperneq 32

Skinfaxi - 01.12.2001, Qupperneq 32
Björn B. Jónsson formaður UMPÍ Ég vonast til að mín verði getið sem formanns sem leiddi UMFI inn í nýja tíma á nýrri öld. Jsg* Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að það eigi að vera tvenn lands- samtök í þessu landi sem sinna ungmenna- og íþróttastarfinu. Það er að segja ein grasrótar- samtök og ein afreksíþrótta- samtök. s / A 42. sambandsþingi UMFI, sem haldið var í sumar, var Björn B. Jónsson kjörinn formaður UMFí, en Björn hefur setið í stjórn UMFÍ frá 1995 og verið varafor- maður hreyfingarinnar undan- farin ár. Björn er uppalinn í Bisk- upstungum en býr á Selfossi í dag og er framkvæmdastjóri Suð- urlandsskóga. Valdimar Krist- ófersson kom við á skrifstofu hans á Selfossi, þáði kaffi og kökur og ræddi við hann um UMFI og þau mál sem hafa verið í brennidepli að undanförnu. Þú varst kjörinn formaður UMFÍ á síðasta sam- bandsþingi. Er gamall draumur að rætast? „Ég hef ekki reynt leynt og ljóst að verða formaður UMFI. En ég neita því ekki að ég hafi mikinn áhuga á málefnum Ungmennafélagshreyfingarinnar í gegn- um árin. Að hafa möguleika á að koma sínum áhugamálum til framkvæmda hlýtur að flokkast undir ákveðin forréttindi. Þannig má segja að vissu leyti gamall draumur sé að rætast." Nýr skipstjóri siglir oft á aðrar slóðir en forveri hans. Ert þú öðruvísi þenkjandi en fyrrverandi formaður og með aðrar hugmyndir? „Allir hafa sína skoðun á því sem þeir taka sér fyrir hendur. Við ungmennafélagar höfum verið lánsamir með for- menn í gegnum árin, sem allir hafa staðið sig vel. Þeir hafa sett sinn svip á hreyfinguna, hver með sínum hætti. Eg vonast til að mín verði getið sem formanns sem leiddi UMFI inn í nýja tíma á nýrri öld. Það er stór hópur fólks innan UMFI sem hefur ákveðnar skoðanir á hvernig framtíð UMFÍ á að vera og ég er eirtn þeirra." Þú ert þekktur fyrir að vera mikill umhverfis- og náttúrunnandi. Ætlar þú að leggja meiri áherslu á þessa þætti í starfi Ungmennafélagsins? Umhverf- ismál munu vonandi fá mikla athygli innan UMFÍ á næstunni. En hvort þau munu fá meira vægi innan hreyfingarinnar en aðrir málaflokkar verður að koma í ljós. Það þykir orðið sjálfsagður hlutur hjá flestum að ganga vel um umhverfi sitt og þar verða ungmennafélagar að vera í fararbroddi eins og þeir hafa verið hingað til." Þú hefur strax látið til þín taka og gert ákveðnar skipulagsbreytingar á stjórninni og komið á legg þremur sviðum, það eru íþrótta-, menningar- og umhverfissvið. Flvert er hlutverk þessara nýju sviða? „Sviðsstjórum er ætlað að hafa góða yfirsýn yfir sinn málaflokk í starfi UMFI og vera stjórn ráðgefandi á hverju sviði fyrir sig. Auk þess er þeim ætlað að vinna með nefndum innan UMFI að stefnumótandi tillögum og verða nefndum innan UMFI ráðgefandi á sínu sviði. í hverju sviði sitja þrír menn þ.e.a.s. sviðsstjóri sem er tilnefndur úr stjórn UMFI og tveir úr grasrót hreyfingarinnar. Sviðum UMFÍ er ætlað það hlutverk að koma með ábendingar að nýjum leiðum í starfi UMFI eða breytingar á núverandi starfi. Síðan er hugmyndin að fjalla um framtíð- arsýn UMFÍ á vorfundi vorið 2002." Þú talaðir um það í viðtali við Skinfaxa í fyrra að þú teldir að formaður UMFÍ þyrfti að vera búsett- ur í Reykjavík. Hver eru viðhorf þín í dag? „Ég er ennþá á þeirri skoðun, en ég tók þá ákvörðun að láta ekki Hellisheiði verða þröskuld í vegi fyrir að taka við formennsku í UMFI. Allur sá tími sem fer í að keyra yfir Hellisheiði er tímaeyðsla og væri betur varið í fundarsetur eða önnur verkefni sem eru ærin. Það hefur þó komið í ljós að hugmyndir geta fæðst á leiðinni yfir Heiðina eða þá að tími vinnst til að móta eða þróa hugmyndir betur sem hafa verið í burðaliðnum um lengri eða skemmri tíma." A sambandsþinginu í lok október var farið yfir umsókn ÍBR og ÍBH um aðild að samtökunum. Fundarmenn tóku vel í þessa umsókn en hver verður framvinda rnála? „Það er sjö manna nefnd að fara í "naflaskoðun" á UMFI, þar á meðal hvort það eigi að taka inn í hreyfinguna íþróttabanda- lögin í landinu. Þetta er spennandi kostur og að vissu leyti mjög ögrandi. Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að það eigi að vera tvenn landssamtök í þessu landi sem sinna ungmenna- og íþrótta- starfinu. Það er að segja ein grasrótarsamtök og ein afreksíþróttasamtök."

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.