Skinfaxi - 01.02.2003, Qupperneq 2
ritstjdrinn
GÖNGUM ÍSLAND
í GLEÐILEGU SUMRI
Þá er sumarið komið ef það á annaðborð fór nokkum tímann í
fyrra því ekki fór mikið fyrir vetrarhörkunni þetta misserið. Það
gleðjast sjálfsagt margir yfir því hversu veturinn hefur verið
mildur undanfarin ár nema eðlilega þeir sem stunda vetragrein-
arnar „grimmt" og eru háðir blessuðum snjónum. Verðum við
ekki að vona þeirra vegna að næsti vetur verði snjóþyngri í fjöll-
unum a.m.k. og menn geti rennt sér niður brekkurnar svo megi
telja í mánuðum en ekki vikum. En hvað sem öðru líður þá er
sumarið komið og vonandi að allir fái þess notið.
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar
UMBROT OG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÁByRGÐARMAÐUR
Sæmundur Runólfsson Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Markaðsmenn
PRENTUN Svansprent
PRÓFARKALESTUR Aðalbjörg Karlsdóttir
PÖKKUN Ás Vinnustofa
Áður en lengra verður haldið biðst undirritaður ásamt ritnefnd
Skinfaxa lesendur afsökunar á því hversu fyrsta tölublaði
Skinfaxa á þessu ári hefur seinkað. Ástæðan fyrir þessari seinkun
er ákveðnar breytinga sem áttu sér stað hjá blaðinu.
Þetta hefur þó eðlilega engin áhrif haft á starfsemi UMFI og
engin lognmolla ríkjandi innan hreyfingarinnar frekar en fyrri
daginn Mörg stórverkefni eru í fullum gangi innan um þessar
mundir og önnur að fara af stað með hækkandi sól. Verkefnið
„Hættum að reykja" hefur gengið vel og er það verkefni í fullum
gangi. Mörg fyrirtæki og bæjarfélög hafa styrkt verkefnið og leit
Skinfaxi við hjá Árna Sigfússyni bæjarstjóra í Reykjanesbæ en
Ámi og nokkur fyrirtæki í bænum hafa sagt reykingum stríð á
hendur öðrum til eftirbreytni. Þá hafa tónlistarmenn verið ötulir
stuðningsmenn verkefnisins og einn af þeim er Hreimur í Landi
og sonum eins og kemur fram í blaðinu.
Fíkn er fjötur sem er samstarfsverkefni Kammerskórs Reykja-
víkur og UMFI og tókst það verkefni með miklum ágætum og
voru m.a. stórtónleikar haldnir í Hallgrímskirkju í lok mars fyrir
fullri kirkju. Þessu veigamikla verkefni er hvergi nærri lokið eins
fram kemur í máli Péturs Guðmundssonar, sem heldur utan um
verkefnið.
Unglingalandsmótið á ísafirði og Göngum ísland
Þá styttist óðum í Unglingalandsmót UMFI á Isafirði en þetta er
í sjötta skiptið sem Unglingalandsmótið er haldið og er það orðið
árlegt. Það þarf að mörgu að huga fyrir slíkt stórmót og fór Skin-
faxi á stúfana og komst að því undirbúningi miðar vel.
Þá eru mörg önnur spennandi verkefni að fara af stað á næst-
unni og má þar m.a. nefna „Göngum ísland" sem allir ættu að
taka þátt í m.a. til að njóta félagsskaparins og íslenskrar náttúru
sem er stórbrotin sama hvar stigið er niður fæti. Annars hvetur
undirritaður alla sem vettlingi geta valdið að taka þátt í sem
flestum verkefnum á vegum UMFÍ enda úr nógu að velja.
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Kristín Gísladóttir
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Ásdís H. Bjarnadóttir
Hildur Aðalsteinsdóttir
Sigurður Viggósson
Kjartan P. Einarsson
Svanur M. Gestsson
Birgir Gunnlaugsson
Með sumarkveðju
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Það er Hreimur Heimisson,
söngvari hljómsveitarinnar Land
og synir, sem prýðir forsíðuna að
þessu sinni. Það var Sigurjón
Ragnar, ljósmyndari Skinfaxa, sem
tók myndirnar af Hreimi og
öðrum viðmælendum blaðsins.
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.